Umsókn um reikningsviðskipti

Umsókn um reikningsviðskipti

Til að versla fyrir hönd fyrirtækis á skeljungur.is og eiga reikningsviðskipti við Skeljung þarf að ljúka fimm einföldum skrefum. Það tekur örfáar mínútur.

Gott að vita áður en þú byrjar

  • Ef sækja á um reikningsviðskipti fyrir hönd fyrirtækis þarf sá sem tengir fyrirtækið að vera prókúruhafi þess. Ef þú ert ekki prókúruhafi þarf prókúruhafinn að stofna aðganginn og getur svo boðið þér aðgang (sjá skref 5).
  • Hafðu rafræn skilríki eða Auðkennisapp við höndina – þau eru notuð til að auðkenna þig, líka þegar aðgangur er stofnaður með netfangi.

1. Koma í viðskipti

Smelltu á hnappinn Koma í viðskipti á forsíðu skeljungur.is. Þá ferðu beint á innskráningarsíðuna.

Þú kemst líka á sömu síðu með því að smella á notendatáknið efst til hægri og velja Minn reikningur.

2. Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang

Veldu hvernig þú vilt skrá þig inn:

  • Rafræn skilríki – sláðu inn símanúmerið þitt og staðfestu í símanum.
  • Auðkennisapp – staðfestu með Auðkennisappinu.
  • Netfang – sláðu inn netfangið þitt og smelltu á Stofna aðgang. Þú þarft síðan að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum eða Auðkennisappi til að ljúka stofnuninni.

Aðgangurinn stofnast á þínu nafni. Fyrirtækið er tengt í næsta skrefi.

3. Tengdu fyrirtækið þitt

Þegar þú ert innskráð(ur):

  1. Smelltu á notendatáknið efst til hægri og veldu Búðu til fyrirtækjareikning – eða farðu á Mín síða, smelltu á nafnið þitt efst til hægri og veldu Nýr fyrirtækja aðgangur.
  2. Á síðunni Tengja fyrirtæki slærðu inn kennitölu fyrirtækisins og smellir á Halda áfram.

Aðeins prókúruhafi getur tengt fyrirtæki. Ef þú ert ekki skráð(ur) prókúruhafi birtast skilaboð þess efnis og fyrirtækið tengist ekki – þá þarf prókúruhafi að stofna aðganginn og bjóða þér aðgang.

4. Sæktu um reikningsviðskipti

Þegar fyrirtækið hefur verið tengt birtist rauður borði efst á síðunni. Smelltu á Hefja umsókn í borðanum.

Umsóknin fer fram í gegnum Viðskiptabrú Creditinfo og tekur örfáar mínútur. Að umsókn lokinni fer hún í yfirferð hjá Skeljungi og við látum þig vita þegar fyrirtækið hefur verið samþykkt í reikningsviðskipti. Þangað til er ekki hægt að versla í netversluninni fyrir hönd fyrirtækisins.

5. Bjóddu samstarfsfólki aðgang

Sá sem tengdi fyrirtækið fær sjálfkrafa hlutverkið stjórnandi fyrir viðkomandi fyrirtæki. Stjórnandi getur bætt við fleiri notendum. Farðu á Mín síða, veldu Notendur og smelltu á Bjóða nýjum notanda. Hver notandi getur haft eitt af þremur hlutverkum:

HlutverkHeimildir
StjórnandiPantar vörur og sér um notendur fyrirtækisins – býður nýjum notendum, breytir hlutverkum og lokar aðgangi.
InnkaupandiPantar vörur fyrir hönd fyrirtækisins.
ÓvirkurGetur ekki skráð sig inn fyrir hönd fyrirtækisins. Hentar t.d. þegar starfsmaður hættir.

Þú breytir hlutverki hvenær sem er með því að smella á hlutverkið við hlið notandans. 

Þarftu aðstoð?

Hafðu samband við þjónustuver Skeljungs í síma 444 3000 eða á adstod@skeljungur.is. Opið mánudaga til fimmtudaga 8:15–16:00 og föstudaga 8:15–15:15.