Skilmálar

Viðskiptaskilmálar Skeljungs

1. Almennt

Skilmálar þessir gilda fyrir sölu á vöru og þjónustu Skeljungs ehf., kt. 630921-2010 (hér eftir „Skeljungur“) og teljast samþykktir við staðfestingu á kaupum.

Í vissum samningssamböndum kunna að gilda sérstakir skilmálar milli Skeljungs og viðskiptavina og ganga þeir þá framan þessum almennu skilmálum. Skilmálar þessir skulu þá vera til fyllingar framangreindum skilmálum. Sé gert sérstakt samkomulag um viðskipti skal það gilda framar skilmálum þessum.

Til fyllingar skilmálum þessum gilda þau lög og reglur sem um starfsemi Skeljungs og réttindi viðskiptavina gilda, þ.m.t. lög um neytendakaup nr. 48/2003, lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu nr. 30/2002, lög um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga nr. 7/1936, lögræðislög nr. 7/1997, lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018 og almennar reglur kauparéttar.

2. Um Skeljung

Hlutverk Skeljungs er að þjóna orkuþörf fyrirtækja á hagkvæman og öruggan máta í sátt við samfélagið og umhverfi sitt. Starfsemi Skeljungs er á sviði sölu og þjónustu við fyrirtæki tengt fjölorku. Fyrirtækið sér um dreifingu, innkaup og heildsölu á eldsneyti, smurolíum, hreinsi- og efnavörum, áburði sem og öðrum vörum og þjónustuþáttum til fyrirtækja og bænda. Þjónusta og sala til stórnotenda, til útgerða, í flug og verktöku er einnig hluti af starfseminni. Skeljungur er enn fremur umboðsaðili Shell á Íslandi auk þess að fara með eignarhald í Barki, EAK, Fjölveri og Ecomar.

Helstu upplýsingar um Skeljung:

Skeljungur ehf.

Skútuvogi 1

104 Reykjavík

Sími 444 3000

Netfang skeljungur@skeljungur.is

Frekari upplýsingar um starfsemi Skeljungs má finna á vefsíðu félagsins, www.skeljungur.is.

3. Almennt um viðskipti á sölustöðvum Skeljungs

Skeljungur kann að breyta viðskiptakjörum sínum, afsláttarflokkum, afsláttarkerfum, verðfyrirkomulagi eða vildarkjörum viðskiptavina. Skal engin slík breyting teljast viðbót við þá afslætti eða viðskiptakjör sem samið hefur verið um við viðskiptavin. Sérkjör á eldsneyti og öðrum vörum taka mið af auglýstu verði samkvæmt verðlista Skeljungs eins og hann er hverju sinni og birtist á heimasíðu Skeljungs (www.skeljungur.is).

Gæði eldsneytis skulu vera í samræmi við þá staðla sem í gildi eru hverju sinni varðandi þær eldsneytistegundir sem Skeljungur selur og það sem búast má við af sambærilegum vörum.

Áhættuskipti skulu að jafnaði eiga sér stað þegar eldsneyti fer úr vörslum seljanda til viðskiptavinar.

4. Reikningsviðskipti

Skilmálar sem varða viðskiptareikning hjá Skeljungi

Með því að sækja um viðskiptareikning hjá Skeljungi samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa eins og þeir eru á hverjum tíma og heimilar Skeljungi að nota allar skráðar upplýsingar, þ.m.t. tölvupóstfang, símanúmer og almennar upplýsingar úr þjóðskrá, til þess að unnt sé að veita umbeðna þjónustu. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Skeljungs.

Í tengslum við áhættustýringu og á grundvelli heimilda sem félagið hefur hverju sinni, aflar Skeljungur sér eftir atvikum upplýsinga hjá Creditinfo í tengslum við mat á nýjum viðskiptavinum, í tengslum við eftirlit með núverandi viðskiptavinum og í tengslum við innheimtu viðskiptakrafna.

Skeljungi er heimilt að synja um opnun á viðskiptareikningi að undangengnu áhættumati viðskiptavina. Áður en reikningsviðskipti eru stofnuð, eða hvenær sem Skeljungur fer fram á slíkt, skal umsækjandi leggja fram þær tryggingar er Skeljungur metur fullnægjandi fyrir skilvísum greiðslum úttekta.

Viðskiptareikningur er með ákveðna hámarksúttektarheimild sem ákvarðast af Skeljungi að teknu tilliti til áhættumats og í samráði við viðskiptamann. Gjalddagi tekur mið af áhættumati viðskiptavinar.

Viðskiptayfirlit og reikningar

Fyrir viðskiptavini sem ekki eru í staðgreiðsluviðskiptum eru yfirlit og reikningar sendir út í byrjun hvers mánaðar. Skeljungur áskilur sér rétt til að gefa reikninga einungis út með rafrænum hætti.

Í útsendum yfirlitum og reikningum koma fram sundurliðaðar upplýsingar um keyptar vörur eftir vöruflokki og upplýsingar um hvar afgreiðsla átti sér stað.

Skeljungur áskilur sér rétt til að fella á viðbótargjald vegna boðgreiðslna, í samræmi við gjaldskrá færsluhirðis á hverjum tíma.

Sé ekki samið sérstaklega um greiðslufrest skal gjalddagi og eindagi vegna útgefinna reikninga vera 15. dagur næsta mánaðar eftir útgáfu reiknings. Viðskiptavinur í reikningsviðskiptum skuldbindur sig til að greiða viðskiptaskuld sína eigi síðar en á eindaga. Reikningstímabil er einn almanaksmánuður. Um innheimtu og greiðslu dráttarvaxta fer samkvæmt 13. grein skilmála þessara.

5. Vefverslun og pöntunarviðskipti

Skeljungur heldur úti vefverslun á slóðinni www.verslun.skeljungur.is. Skilmálar þessir, eins og þeir eru á hverjum tíma, teljast samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.

Upplýsingar og verð

Uppgefin verð í vefverslun Skeljungs eru án sérkjara viðskiptamanna, gefin upp í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð á heimasíðu Skeljungs eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur.

Skeljungur veitir upplýsingar um vörur og vöruframboð eftir bestu vitund hverju sinni. Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana. Skeljungur áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef pöntuð vara er uppseld, skemmd eða gölluð. Skeljungur mun upplýsa viðskiptavin um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem viðskiptavini býðst í stað pantaðrar vöru. Viðskiptavinur fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða afturkalla pöntun.

Pöntun

Pöntun er bindandi þegar viðskiptavinur hefur staðfest pöntun sína í kaupferlinu. Skeljungur er skuldbundinn til að afgreiða pöntun svo lengi sem hún samræmist vöruúrvali og verðlagningu.

Allar pantanir þar sem grunur er um fölsun persónuupplýsinga eða önnur svik, og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif, skulu afturkallaðar og skal Skeljungur ekki skuldbundinn til að afgreiða slíkar pantanir.

Skeljungur sendir viðskiptavini staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef viðskiptavinur hefur skráð netfang sitt við kaupin. Viðskiptavini er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst og ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við pöntun.

Afhending

Skeljungur býður upp á heimsendingu keyptra vara innan Íslands. Skeljungur sér um heimsendingar innan höfuðborgarsvæðisins og gildir eftirfarandi um þær sendingar:

• Ekki er hægt að óska eftir ákveðnum tíma innan aksturslotu Skeljungs;

• Ef bílstjóri telur sig ekki geta afhent vöruna t.d. vegna hindrana eða vegna þess að aðgengi er ábótavant, tekur hann vöruna til baka.

Ef afhendingu vöru seinkar mun Skeljungur tilkynna viðskiptavini um seinkun og veita upplýsingar um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar, eða bjóða staðgengilsvöru ef að varan er uppseld.

Heimsendingar utan höfuðborgarsvæðisins eru framkvæmdar af þriðja aðila og ábyrgist Skeljungur ekki ef seinkun á afhendingu til viðskiptavinar frá sendanda á sér stað.

Áhættuskipti vegna pöntunarviðskipta fara fram þegar vörur fara úr vöruhúsi Skeljungs.

Skeljungur ber ekki ábyrgð á tjóni sem verður í flutningi.

Innheimt er gjald fyrir allan flutning í samræmi við gjaldskrá Skeljungs eða þess þriðja aðila sem veitir flutningsþjónustu, eftir því sem við á.

Rannsókn á vöru og réttur við galla

Eftir að viðskiptavinur hefur móttekið pöntun skal hann, án ótilhlýðilegra tafa, kanna hvort allar pantaðar vörur hafi verið afhentar, hvort þær séu ógallaðar og hvort ástand þeirra og eiginleikar séu í samræmi við upplýsingagjöf Skeljungs. Ef viðskiptavinur telur að vara sé gölluð skal hann tilkynna það til Skeljungs án ótilhlýðilegrar tafar og með sannanlegum hætti. Hið sama gildir ef allar pantaðar og greiddar vörur hafa ekki verið afhentar. Tilkynning skal send með tölvupósti til Skeljungs. Tilkynni viðskiptavinur ekki um galla án ótilhlýðilegra tafa kann viðskiptavinur að glata rétti sínum til að bera fyrir sig gallann, standi ákvæði laga ekki til annars. Skeljungur áskilur sér rétt til að sannreyna innan eðlilegra tímamarka hvort að varan sé gölluð.

Um frest viðskiptavinar til að tilkynna um galla og úrræði hans fer eftir ákvæðum laga um neytendakaup nr. 48/2003, ef notandi er neytandi, en að öðrum kosti samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.

Skilaréttur

Viðskiptavinur getur skilað vörum sem keyptar eru í vefverslun Skeljungs innan 14 daga. Í stað vöru sem hefur verið skilað getur viðskiptavinur valið nýja vöru, eða valið að fá vöru endurgreidda að fullu. Við skil á vöru þarf hún að vera í upprunalegu ástandi ásamt umbúðum.

Skeljungur áskilur sér rétt til að sannreyna að vara sem skilað er sé í upprunalegu ástandi, innan eðlilegra tímamarka. Skeljungur áskilur sér rétt til þess að koma í veg fyrir alla misnotkun á 14 daga skilarétti.

Ábyrgð og eignarréttur

Seldar vörur eru eign Skeljungs þar til kaupverð er greitt að fullu. Skeljungur ber ekki sérstaka ábyrgð á vörum í vefverslun umfram lögbundna ábyrgð nema slíkt sé sérstaklega tekið fram í upplýsingum um vörur. Ef ábyrgðaryfirlýsingar eru gefnar er þeim ætlað að veita viðskiptavini betri rétt en hann kann að eiga samkvæmt lögum um neytendakaup eða lausafjárkaup eftir atvikum.

6. Viðskiptakort Skeljungs

Skeljungur gefur út fyrirtækjaviðskiptakort („viðskiptakort“) sem ætluð eru til úttekta á stöðvum Skeljungs sem og í verslunum samstarfsaðila og í tengslum við aðrar vörur og þjónustu sem Skeljungur býður upp á eða hefur milligöngu um. Með fyrstu notkun á viðskiptakorti Skeljungs samþykkir viðskiptavinur skilmála þessa eins og þeir eru á hverjum tíma. Upplýsingar um korthafa eru varðveittar á meðan viðskiptavinur er handhafi viðskiptakorts og viðskiptahagsmunir Skeljungs krefjast þess, en þó aldrei lengur en lög og reglur mæla fyrir um.

Umsókn og útgáfa

Hægt er að sækja um viðskiptakort með því að senda póst á adstod@skeljungur.is eða hringja í síma 444-3000. Skeljungi er heimilt að leita allra upplýsinga sem fyrirtækið telur nauðsynlegar til að afgreiða umsókn viðskiptamanns um viðskiptakort Skeljungs, þar með talið upplýsinga frá Creditinfo og viðskiptabönkum.

Almennt um viðskiptakort

Viðskiptakort er eign Skeljungs og getur félagið afturkallað það og lokað viðskiptareikningi vegan vanskila eða misnotkunar án fyrirvara á hvaða tímapunkti sem er. Notkun viðskiptakorts er á ábyrgð skráðs handahafa viðskiptakorts og skuldbindur hann sig til að greiða að fullu allar þær úttektir sem framkvæmdar eru með kortinu, hvort sem þær eru í þágu handhafans eða þriðja aðila, með eða án vitneskju skráðs handhafa.

Vilji handhafi viðskiptakorts hætta við dælingu skal byssa valinnar afgreiðsludælu tekin úr slíðrinu og sett kyrfilega aftur í slíðrið. Sé hins vegar ekkert aðhafst lokast dælan sjálfkrafa eftir 1,5 – 3 mínútur. Handhafi viðskiptakorts ber áhættuna af því að þriðji aðili hefji ekki dælingu á meðan.

Sérkjör

Handhafar viðskiptakorta njóta ýmissa sérkjara, af eldsneyti og bílatengdum vörum. Sérkjör á eldsneyti og öðrum vörum taka mið af auglýstu verði samkvæmt verðlista Skeljungs eins og hann er hverju sinni og birtist á heimasíðu Skeljungs (www.skeljungur.is). Verðlistinn kann að taka breytingum og eru viðskiptavinir hvattir til að fylgjast vel með auglýstu verði.

Týnt Viðskiptakort

Glatist viðskiptakort skal tilkynna það án tafar með tölvupósti á adstod@skeljungur.is eða í síma 444-3000 á skrifstofutíma. Utan skrifstofutíma skal hringt í símanúmerið 444-3024. Handhafi viðskiptakorts ber fulla ábyrgð á öllum úttektum þar til korti hefur verið lokað.

Breytingar á tengiliðaupplýsingum

Handhafi viðskiptakorts skal tilkynna um breytingar á aðsetri, símanúmeri og tölvupóstfangi til Skeljungs með tölvupósti á tölvupóstfangið adstod@skeljungur.is, eins fljótt og hægt er, til að tryggja að viðeigandi upplýsingar berist honum eftir réttum leiðum. Um meðferð slíkra persónuupplýsinga vísast til persónuverndarstefnu Skeljungs.

7. Ábyrgð vegna tjóns

Skeljungur ber ekki ábyrgð á tjóni sem viðskiptavinur verður fyrir nema það megi rekja til stórkostlegs gáleysis eða ásetnings starfsmanna Skeljungs við framkvæmd starfa þeirra, kveði lög eða samningar ekki á um annað.

Skeljungur ber undir engum kringumstæðum ábyrgð gagnvart viðskiptavini á missi hagnaðar, rekstrartjóni, skerðingu á viðskiptavild, refsikenndum viðurlögum eða annars konar óbeinu eða afleiddu tjóni viðskiptavinar eða þriðja aðila. Skeljungur ber sömuleiðis ekki ábyrgð á tjóni sem leiðir af galla eða bilun í hugbúnaði eða vélbúnaði hvort sem hann er eign viðskiptavinar eða Skeljungs.

Viðskiptavinur skal halda Skeljungi skaðlausum af hvers kyns tjóni, kröfum, aðgerðum, ábyrgðum, sektum, refsingum og kostnaði sem Skeljungur kann að verða fyrir vegna eða í tengslum við viðskipti aðila og sem leiða beint eða óbeint af aðgerðum eða aðgerðarleysi viðskiptavinar, hvort sem það stafar af vanrækslu, ásetningi eða gáleysi viðskiptavinar, umboðsaðila hans  eða fulltrúa í tengslum við samning aðila eða af broti á samningi aðila. Skaðleysisyfirlýsing þessi skal ekki með neinu móti takmarka þau lögbundnu réttindi sem Skeljungur kann að njóta vegna mögulegra samningsbrota.

Ábyrgð Skeljungs á öllu tapi, kröfum eða tjóni sem stafar af eða frá brotum á samningi aðila, takmarkast við þá fjárhæð sem Skeljungur fær greidda frá viðskiptavinum á tólf (12) mánaða tímabili fyrir brotið. Ef takmörkun á tjóni er talin ganga lengra en lög heimila skulu skilmálar þessir gilda að því marki sem lög leyfa.

Ábyrgð Skeljungs er ávallt háð því að viðskiptavinur hafi að öðru leyti efnt skyldur sínar, gætt varúðarskyldu og hagað viðskiptum að öllu leyti í samræmi við fyrirmæli laga, reglugerða og eftir atvikum samkvæmt reglum eða skilmálum annarra þjónustuaðila.

8. Vanefnd

Greiði viðskiptavinur ekki fyrir afgreiddar úttektir á gjalddaga er Skeljungi heimilt að hætta að þjónusta hann þá þegar. Hætti Skeljungur að veita þjónustu með vísan til framangreinds skal félaginu ekki skylt að hefja afgreiðslu á ný nema viðskiptavinur greiði útistandandi skuld eða leggi fram tryggingu fyrir greiðslu sem Skeljungur metur fullnægjandi. Skal viðskiptavinur greiða hæstu heimilu dráttarvexti frá gjalddaga til greiðsludags komi til greiðslufalls.

Komi upp veruleg vanefnd skal Skeljungi heimilt að segja upp öllum viðskiptum við viðskiptavin, hætta að þjónusta viðskiptavin og gera honum þá þegar reikning fyrir öllum óreikningsfærðum vöruúttektum. Veruleg vanefnd telst vera fyrir hendi við greiðslufall eða ef kemur til gjaldþrots, rekstrarstöðvunar, greiðslustöðvunar eða ef hafnar eru nauðasamningsumleitanir.

9. Force Majeure

Skeljungur ber ekki ábyrgð á tjóni, beinu eða óbeinu, sem viðskiptavinur kann að verða fyrir og tengist skilmálum þessum eða viðskiptum sem framkvæmd eru á grundvelli þeirra, ef rekja má tjónið til atvika sem stafa af lagaboði, aðgerðum stjórnvalda eða óviðráðanlegum aðstæðum (force majeure), s.s. náttúruhamförum, styrjöldum, hryðjuverkum, farsóttum, verkföllum, lokun landamæra, rafmagnstruflunum eða rafmagnsleysi, truflunum í uppgjörskerfi, símkerfi eða öðrum boðleiðum, eða öðrum sambærilegum atvikum. Skeljungur ber jafnframt ekki ábyrgð á óþægindum, kostnaði, missi fjárfestingartækifæra eða öðru fjártjóni, beinu eða óbeinu sem stafar af lokun, bilun, truflun eða annarri röskun á starfsemi Skeljungs. Skeljungur ber ekki skaðabótaskyldu gagnvart viðskiptavini af tjóni sem kann að leiða af því að Skeljungur geti ekki staðið við afhendingu eldsneytis til viðskiptavinar vegna framangreindra atvika. Komi til atvika sem grein þessi tekur til, þá skal Skeljungur þó gera allt sem í þess valdi stendur til að útvega viðskiptavini eldsneyti eins fljótt og kostur er.

10. Persónuvernd

Persónuverndarstefnu Skeljungs má finna inni á heimasíðu Skeljungs: www.skeljungur.is.

11. Trúnaður

Aðilar skulu gæta trúnaðar um atriði sem þeir verða fá upplýsingar um í tengslum við viðskipti og eðli máls samkvæmt skulu fara leynt, nema annað leiði af lagafyrirmælum, sé nauðsynlegt fyrir framkvæmd samnings eða leiði að öðru leyti af eðli máls.

12. Framsal

Skeljungi skal heimilt að fela öðru félagi í sinni eigu eða innan sömu fyrirtækjasamstæðu framkvæmd samnings við viðskiptavin, enda geti það fullnægt þeim skyldum sem Skeljungur tekst á hendur með samningnum með fullnægjandi hætti. Skal viðskiptavini heimilt að framselja samning til annars félags innan sömu félagasamstæðu að fenginni heimild seljanda.

13. Innheimta, dráttarvextir og stöðvun orkuafhendingar

Verði reikningur ekki greiddur á gjalddaga reiknast af dráttarvextir samkvæmt 1. mgr. 6. gr. Laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá gjalddaga og til greiðsludags. Auk dráttarvaxta getur fallið til innheimtukostnaður í samræmi við lög og reglur um innheimtu fjárkrafa.

Með samþykki á skilmálum þessum samþykkir viðskiptavinur að öll frum-og milliinnheimta vegna vanskila, þ.e. birting innheimtuviðvörunar og milliinnheimtubréfa, fari fram með stafrænum hætti. Á það við hvort sem um er að ræða innheimtu sem framkvæmd er af Skeljungi eða af hálfu innheimtufyrirtækis eða lögmanns sem Skeljungur felur að annast innheimtuna. Í stafrænni innheimtu felst að allar tilkynningar vegna vanskila berast viðskiptavini með tölvupósti á uppgefið netfang hans. Viðskiptavinur ber fulla ábyrgð á skráningu netfangs síns og því að tilkynna þær breytingar til Skeljungs sem hann kann að gera á netfangi sínu. Hafi viðskiptavinur vanrækt þá skyldu sína að uppfæra upplýsingar um netfang ber hvorki Skeljungur né innheimtuaðili ábyrgð á því að tilkynningar berist ekki viðskiptavini, né því tjóni sem viðskiptavinur kann að verða fyrir vegna þess að framangreind samskiptaleið var notuð. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að netfangi hans kann að vera miðlað til þriðja aðila, þ.e. til innheimtuaðila, í framangreindum tilgangi. Viðskiptavinur gerir sér grein fyrir að þrátt fyrir að innheimta fari fram með stafrænum hætti er frum-og milliinnheimtukostnaður innheimtur í samræmi við reglugerð nr. 37/2019 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl. Viðskiptavini er heimilt að afturkalla samþykki um að innheimta fari fram með stafrænum hætti. Tekur afturköllun gildi um leið og upplýsingarnar eru sannanlega komnar til Skeljungs.

Viðskiptavinur getur sótt hreyfingaryfirlit og reikninga á heimasíðu Skeljungs: www.skeljungur.is.

Viðskiptavinur skuldbindur sig til að greiða alla reikninga á eindaga. Ef reikningur greiðist ekki á eindaga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Fyrsta innheimtuviðvörun er send 5 dögum eftir eindaga samkvæmt gjaldskrá milli innheimtuaðila. Reikningur fer í milliinnheimtu 15 dögum eftir eindaga með annarri innheimtuviðvörun samkvæmt gjaldskrá milliinnheimtuaðila.

Reikningur fer í lögfræðiinnheimtu 35 - 45 dögum eftir eindaga með lögfræðibréfi samkvæmt gjaldskrá lögfræðiinnheimtu.

Skeljungur áskilur sér rétt til að gjaldfella kröfur strax ef um mjög alvarleg vanskil eða ógjaldfærni er að ræða. Viðskiptareikningi er lokað ef tilkynningar berast frá viðskiptamannavakt Creditinfo að teknu tilliti til greiðsluhegðunar og helst reikningur lokaður á meðan tilkynning frá viðskiptamannavakt er virk. Viðskiptareikningi er lokað til frambúðar ef mál er höfðað vegan ágreinings um greiðslu kröfu.

Skeljungur er þáttakandi í Greiðsluhegðunarkerfi Creditinfo og miðlar greiðsluhegðunar upplýsingum til Creditinfo. Þessi texti kemur fram á reikningum: Upplýsingum um útgáfu reikningsins á lögaðila, fjárhæð hans og hvenær hann verður greiddur, verður miðlað áfram í Greiðsluhegðunarkerfi Creditinfo Lánstrausts hf.

14. Breytingar á skilmálum

Skeljungur áskilur sér rétt til að einhliða fella skilmála þessa úr gildi, bæta við þá eða breyta hvenær sem er. Verði slíkt gert skal það tilkynnt á heimasíðu Skeljungs (www.skeljungur.is) og skulu uppfærðir skilmálar, ef um er að ræða, birtast þar. Breytingarnar taka gildi frá og með þeim degi sem tilgreint er í tilkynningunni eða eftir atvikum skilmálunum sjálfum. Litið er svo á að viðskiptavinur hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Áskilur Skeljungur sér sérstaklega rétt til þess að gera, hvenær sem er og án fyrirvara, eftirtaldar breytingar á viðskiptakjörum:

i) breyta verðum eða þjónustugjöldum, þ.m.t. að hefja gjaldtöku fyrir þjónustu sem verið hefur gjaldfrjáls;

ii) breyta verðum á einstökum afgreiðslustöðvum;

iii) breyta uppbyggingu afsláttarkerfis.

15. Lögsaga og úrlausn ágreiningsmála

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu.

Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur á milli aðila sem ekki verður jafnaður þá skal heimilt að bera hann undir Héraðsdóm Reykjavíkur.

Skilmálar þessir gilda frá 16.06.2024.