Hágæða drifrásarolía (API GL-5) fyrir mikið álagða drifása í atvinnubílum. Spirax S3 AS er framleidd úr völdum jarðolíugrunnolíum og öflugum bætiefnum sem leyfa lengri skiptitíma á olíunni. Hún veitir góða slit- og ryðvörn, bætta oxunarþol og góða síanleika (filterability) sem helst út endingartíma olíunnar.
Hentar fyrir mikið álagða drifása með hypoid-gírum, og einstaka þungar handskiptar gírkassa ef framleiðandi gírkassans leyfir API GL-5 eða MT-1. Hentar ekki í gírkassa sem krefjast API GL-4. Hét áður Shell Spirax ST 80W-140.

Staðlar: API GL-5, MT-1
Samþykki: Scania STO 1:0, ZF TE-ML 12E / 05A / 16C / 21A, Renault Trucks (RVI) mælir með fyrir P1370 drifása
SAE: 80W-140