
Vörulýsing
Faglega hönnuð háþrýstikerfislausn fyrir bílaþvott og viðhald
Öflug háþrýstidæla sem skilar 160 bara þrýstingi og 14 lítra rennsli á mínútu fyrir hámarksafköst og skilvirkan þvott. Kerfið afhendist tilbúið til notkunar með vönduðum fylgihlutum.
Búnaður og fylgihlutir
Háþrýstidæla (160 bar / 14 L/mín): Áreiðanleg og kröftug dæla.
Slönguhjól: Kemur með 20 metra hágæða háþrýstislöngu sem tryggir gott vinnusvæði.
Þvottabúnaður: Háþrýstibyssa með hraðtengjum og fjölbreyttum spíssum fyrir mismunandi þrýsting.
Kvoðukerfi: inniheldur kvoðustút og allan nauðsynlegan búnað til að þekja bíla eða tæki með þykkri kvoðu.
Geymslulausn: Traust vegghilla sem heldur 20 lítra brúsa snyrtilegum og aðgengilegum.
Tengi: Allar nauðsynlegar slöngur, fittings og tengi fylgja með til uppsetningar.