
Vörulýsing
Vítissódi - Natríumhýdroxíð er mjög sterkur basi. Sem E524 í matvælaiðnaði er það notað sem sýrustillir og í bakstur (gefur t.d. dökka, glansandi skorpu).
Utan matvælaiðnaðar er natríumhýdroxíð eitt algengasta hreinsiefni sem til er — notað í niðurbrjótandi hreinsiefni (t.d. stíflueyði, ofnahreinsi), sápu- og hreinsiefnaframleiðslu, pappírs- og sellulósavinnslu, og til að stilla pH í vatnsmeðferð.