Kalíumkarbónat (K2CO3) er basískt kalíumsalt. Það er hvítt, mjög vatnssækið (rakadrægt) duft sem leysist auðveldlega upp í vatni og myndar sterklega basíska lausn.