Kalsíumklóríð (CaCl2) í vatnslausn, með styrkleika á bilinu 34–36%. Kalsíumklóríð er ólífrænt, hvítt salt sem er mjög vatnssækið (hygroscopic) og leysist auðveldlega í vatni, með hitamyndandi (exothermic) efnahvarfi við upplausn.

Notkunarsvið
Tæknilegt kalsíumklóríð í fljótandi formi er einkum notað til hálkuvarnar og ísbræðslu á vegum, til rykbindingar á malarvegum, sem hröðunarefni fyrir steypuhersnun (íblöndunarefni allt að 2%), í borvökva og aðra ferla í olíu- og gasiðnaði, við vegstyrkingu, í kælikerfum og til almennrar vatnsmeðhöndlunar í iðnaði.