AeroShell Piston Engine Oil 80 er einkvæma (single grade) hreinolía fyrir flugvélar með stimpilhreyfla. Hún er framleidd úr völdum grunnolíum með háan seigjustuðul og inniheldur engin íblöndunarefni önnur en lítið magn af flotmarkslækkara (pour point depressant) og oxunarvara. Olían er fyrst og fremst notuð til innkeyrslu (break-in) á nýjum eða nýyfirförnum fjórgengis stimpilhreyflum. Hún er ekki ætluð hreyflum sem krefjast olíu með dreifiefni (dispersant), og ekki Porsche-hreyflum.

Upplýsingar:

  • SAE-seigjuflokkur: SAE 40
  • Staðlar: SAE J-1966 Grade 40 (kom í stað MIL-L-6082E), AIR 3560/D, OM-170
  • Seigja við 40°C: 140 mm²/s, við 100°C: 14,6 mm²/s
  • Seigjustuðull: yfir 94