Skilmálar

Skilmálar fyrir Viðskiptakort Skeljungs

1. Umsókn

Hægt er að sækja um kort á heimasíðu Skeljungs eða hér. Einnig liggja umsóknareyðublöð frammi á Shell og Select og á skrifstofum Skeljungs að Hólmaslóð 8, 101 Reykjavík.

Skeljungur áskilur sér rétt til þess að leita allra upplýsinga, sem nauðsynlegar eru að mati félagsins til að afgreiða umsóknina og er heimilt að hafna henni án þess að tilgreina ástæður. Í skilmála þessum merkir orðið „umsækjandi“ fyrirtæki/einstakling sem sækir um Viðskiptakort. Orðið „korthafi“ merkir hins vegar þann einstakling sem korti er úthlutað til af viðkomandi umsækjanda.

2. Samþykki


Áður en prókúruhafi fyrirtækis ritar nafn sitt undir umsókn, ber honum að kynna sér vandlega viðskiptaskilmála þessa. Með undirritun umsóknar um Viðskiptakort Skeljungs samþykkir umsækjandi að fara eftir ákvæðum skilmála þessa. Við rafræna umsókn þarf að samþykkja skilmála áður en umsókn er send.

Vilji umsækjandi segja upp samningi, skal hann tilkynna það skriflega til skrifstofu Skeljungs og ber honum þá að skila korti sundurklipptu þangað eða á næstu Shell eða Select. Verði misbrestur á því getur það skapað korthafa fébótaábyrgð.

Korthafi veitir Skeljungi heimild til að senda honum markaðsefni með sérstökum tilboðum, afsláttum, sérkjörum og öðrum upplýsingum sem Skeljungur telur að korthafi gæti haft áhuga á og ávinning af. Upplýsingar um korthafa verða ekki veittar þriðja aðila.

3. Almenn notkun kortsins


Þegar korthafi tekur við nýju korti skal hann rita nafn sitt á kortið og hefur hann einn heimild til að nota það. Ef kort er gefið út á ákveðið bílnúmer má ekki nota það á aðra bíla. Sama gildir ef kortið er gefið út á ákveðið nafn.

Skeljungur hf. gefur út Viðskiptakort með eftirfarandi möguleikum:
1. Dieselkort - Eingöngu diesel
2. Bensínkort - Eingöngu bensín
3. Firmakort - Eldsneyti, allar bílavörur, hleðslutæki, bón o.fl.
4. Heimiliskort - Allar vörur á Shell stöðvunum og Select verslunum.

Skeljungur hf. setur þau úttektarmörk sem að gilda fyrir hvert kort og skuldbindur umsækjandi sig til að halda sig innan þessara marka.

Að jafnaði eru úttektarmörk kr. 40.000 fyrir einstaklinga á mánuði og kr. 100.000 fyrir fyrirtæki nema um annað sé samið. Umsækjandi skuldbindur sig til að varðveita kortið/kortin með öruggum hætti og ábyrgist að það komist ekki í hendur óviðkomandi aðila.

4. Greiðsluskil og úttektartímabil


Umsækjandi er ábyrgur fyrir öllum úttektum sem stofnað er til með Viðskiptakortum sem hann hefur fengið og skuldbindur sig til að greiða þær.

Úttektartímabil er 1. - 31. dagur hvers mánaðar. Gjalddagi er síðasti dagur úttektarmánaðar. Eindagi er síðasti dagur næsta mánaðar á eftir. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, hafi greiðsla ekki verið innt af hendi á eindaga. Útskriftargjald er nú kr. 340 með vsk. Skeljungur áskilur sér rétt til að breyta úttektartímabili og gjaldi einhliða.

Ef korthafi hefur athugasemdir við reikningsyfirlit, ber honum að tilkynna það til skrifstofu Skeljungs innan 10 daga eftir útskrift.

Þegar um mikil viðskipti er að ræða veitir Skeljungur oft fastan viðskiptaafslátt og er þá um sérstakan afslátt að ræða fyrir viðkomandi viðskiptamann. Af og til er gefinn almennur afsláttur þegar markaðsátak er í gangi á einstakri stöð eða víðar. Sérstakur afsláttur leggst ekki ofan á almennan afslátt heldur gildir sá afslátturinn sem hærri er.

5. Glatað kort


Glatist kort ber umsækjanda að tilkynna það strax til þjónustuvers Skeljungs hf. í síma 444 3100 á afgreiðslutíma. Utan afgreiðslutíma skal hringja í 444 3024. Skeljungur skal þá tafarlaust gera ráðstafanir til að loka fyrir frekari úttekt á viðkomandi korti. Óheimilar úttektir af kortinu af þriðja aðila, eftir að hvarf þess hefur verið tilkynnt til Skeljungs eru ekki á ábyrgð korthafa. Komi kort aftur í leitirnar sem tilkynnt hefur verið að sé glatað, er ekki heimilt að nota það. Tilkynna ber þjónustusveri Skeljungs um endurheimtuna og senda félaginu kortið sundurklippt.

6. Afturköllun og ógilding


Greiðslukortið er eign Skeljungs og getur félagið afturkallað það fyrirvaralaust ef um misnotkun eða vanskil er að ræða hjá korthafa. Heimilt er að afturkalla kort, þrátt fyrir að framangreindum skilyrðum sé ekki fullnægt.

Notkun Viðskiptakorts er óheimil: a) Ef það hefur verið afturkallað. b) Hafi kortið verið ógilt eða tilkynnt um lokun þess vegna vanskila. Misnotkun Viðskiptakorts varðar við lög, sbr. m.a. 249. gr. alm. hegningarlaga.

7. Breyting á skilmálum


Skeljungur áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara viðskiptaskilmála, enda verði handhafa Viðskiptakorts Skeljungs tilkynnt um það. Útsending nýrra viðskiptaskilmála í almennum pósti og/eða birting á heimasíðu Skeljungs telst nægileg tilkynning. Litið er svo á, að handhafi Viðskiptaskorts Skeljungs hafi samþykkt breytinguna ef hann notar kortið eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.

Ef korthafi sættir sig ekki við breytingu á skilmálum getur hann slitið viðskiptum með því að klippa kortið í tvennt og senda það Skeljungi.

8. Tryggingar og aðsetursskipti


Ef um mikil viðskipti er að ræða getur Skeljungur óskað eftir að umsækjandi setji sérstakar tryggingar fyrir greiðslu á kortaúttektum.

Aðsetursskipti umsækjanda skal tilkynna til Skeljungs.

9. Vanskilagjald


Verði um vanskil á kortin að ræða hefur Skeljungur heimild til að innheimta sérstakt vanskilagjald. Vanskilagjald af fyrsta innheimtubréfi sem sent er eigi síðar en 10 dögum eftir eindaga er nú kr. 450. Vanskilagjald af öðru innheimtubréfi sem sent er um það bil 20 dögum eftir eindaga er nú kr. 900. Skeljungur hf. áskilur sér rétt til að breyta vanskilagjaldi einhliða í takt við almenna verðlagsþróun. 

10. Gildistími


Skilmálar þessir gilda frá 1. október 2008.

 



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Einstaklingar » Kortaþjónusta Skeljungs » Viðskiptakort » Skilmálar
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi