Til að fá bestu tæringarvörn þarf frostlögur að vera minnst 50% kælivökvans. Til að ná hámarksfrostþoli þarf blandan að vera 56%. Frostlögur á ekki meira en 65% kælivökvans.
Oktantala gefur til kynna þjöppunarþol bensíns. Talan þýðir í raun hversu mikinn hita bensínið þolir án þess að í því kvikni. Mjög gróf þumalputtaregla hefur lengi vel sagt að bílar sem hafa lægra þjöppunarhlutfall en 9,5 eigi að nota 95 oktana bensín en þeir sem hafa hærra þjöppunarhlutfall en 9,5 eigi að nota bensín með hærri oktantölu, t.d. 99 oktan. Í dag eru hins vegar flestir bílar búnir vélum með svokallaða banknema (knock sensors) sem gera þeim kleift að nýta kosti eldsneytis með hærri oktantölu.
Nei, það er ekki alveg blýlaust en inniheldur um 90% minna blý en gamla blýbensínið gerði.
Shell V-Power 99 oktana bensín er með mestu hreinsieiginleika af því bensíni sem er á íslenska markaðinum í dag. Shell V-Power hreinsar skaðlegar útfellingar og kemur í veg fyrir að nýjar myndist. Bílinn brennir eldsneytinu betur, sem dregur úr bensíneyðslu og mengar þar af leiðandi minna. Shell Formula 95 oktana bensín innheldur einnig hreinsandi bætiefni.
Við hver smurolíuskipti.
Smurolía er í grófum dráttum blanda af grunnolíu og mismunandi bætiefnum allt eftir því hvaða eiginleikum sóst er eftir. Það telst ekki æskilegt að blanda saman olíum með mismunandi eiginleikum.
Tilmæli bílaframleiðanda um tíðni olíuskipta eru mjög mismunandi en byggjast venjulega á því að ekið sé við góðar aðstæður (má skoða sem lágmark). Við erfiðar aðstæður þarf að skipta oftar um olíu td.:
Tíðni olíuskipta fer einnig eftir gæðum þeirrar smurolíu sem notuð er. Fólki er ráðlagt að kynna sér handbók viðkomandi bifreiðar og ábyrgðarskilmála en starfsfólk smurstöðva veitir einnig frekari upplýsingar.