Árið 1993 gaf Skeljungur út bæklinginn Markmið og framtíðarsýn og varð þar með eitt af fyrstu fyrirtækjum landsins til að birta opinberlega yfirlýsingu um hlutverk sitt og stefnu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Viðskiptaumhverfið hefur gjörbreyst, samkeppni aukist og við sjálf höfum haslað okkur völl á nýjum sviðum.
Nýjar viðskiptareglur hafa litið dagsins ljós, byggðar á breyttum aðstæðum og breyttri sýn. Hér birtast þær meginreglur sem stjórn félagsins hefur sett en þær eru að stofni til byggðar á viðskiptareglum sem Shell samsteypan vinnur eftir um allan heim. Við kynnum hér einnig stefnu félagsins í málum sem snerta hollustu, öryggi og umhverfi eins og hún hefur verið samþykkt af stjórn félagsins.
Við hjá Skeljungi stöndum á tímamótum þar sem samfélagið og viðskiptavinir okkar gera sífellt auknar kröfur. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á störf okkar og umhverfi um langan tíma. Þess vegna skiptir miklu að við gerum okkur öll grein fyrir hvert ferðinni er heitið og hvernig við hyggjumst ná þangað. Viðskiptareglurnar eru leiðarvísir okkar á þeirri braut. Við leggjum ríka áherslu á þau sameiginlegu grundvallar gildi sem reglurnar endurspegla enda eru þau sú undirstaða sem störf okkar hvíla á. Reglurnar veita aðhald og auðvelda okkur að meta þau fjölbreyttu viðfangsefni sem mæta okkar í daglegum störfum um leið og þær hjálpa okkur að taka réttar ákvarðanir.
Störf okkar hjá Skeljungi og samskipti við viðskiptavini grundvallast á heiðarleika, ráðvendni og virðingu fyrir umhverfinu. Viðskiptavinir félagsins eiga ávallt að njóta bestu fáanlegrar þjónustu, sem við höfum ánægju af að veita vegna þess að störf okkar einkennast af trausti, jákvæðum samskiptum og opinskárri umræðu. Viðskiptavinir félagsins eiga aldrei að efast um að Skeljungur er þjónustufyrirtæki í fremstu röð.
1. Markmið
Meginhlutverk Skeljungs hf. er að vera arðbært og framsækið fyrirtæki sem stundar innflutning, sölu og þjónustu á unnum olíuvörum og tengdri þjónustu bæði í heildsölu og smásölu.
2. Ábyrgð
Skeljungur hf. lítur svo á að félagið beri ábyrgð gagnvart eftirfarandi fimm megin aðilum:
a) Samfélagið
Samfélagið nýtur góðs af starfsemi félagsins. Með arðsömum rekstri og hagkvæmni á öllum sviðum styrkjum við til frambúðar öfluga þátttöku Skeljungs hf. í íslensku athafnalífi. Við virðum lög og reglur og högum störfum okkar þannig að fyllsta öryggis sé gætt. Við stuðlum að sjálfbærri þróun og stöndum vörð um viðkvæma náttúru landsins.b) Hluthafar
Við leitumst við að gæta hagsmuna hluthafa í hvívetna og að skila viðunandi arði.c) Viðskiptavinir
Við viljum veita viðskiptavinum félagsins úrvals þjónustu og tryggja að vörur og þjónusta þess séu ætíð í fararbroddi hvað varðar gæði, vöruþróun og tækni.d) Starfsmenn
Góður liðs- og starfsandi er okkar sterkasta vopn í stöðugt harðnandi samkeppni. Við berum fyrir brjósti hag starfsmanna félagsins og viljum vera áfram í fremstu röð hvað varðar réttindi þeirra, öryggi og starfsumhverfi. Jafnrétti, þar sem hæfni ráða vali er órofa hluti af menningu félagsins.e) Samstarfsaðilar
Við leitumst við að hafa sanngirni að leiðarljósi í samskiptum við samstarfsaðila félagsins og leggjum áherslu á að báðir aðilar njóti góðs af samstarfinu. Við gerum ráð fyrir að samstarfsaðilar félagsins deili með okkur þeim grundvallarsjónarmiðum og gildum sem fram koma í viðskiptareglum félagsins og séu reiðubúnir að gera þær að sínum. Slík afstaða mun hafa áhrif á val okkar á samstarfsaðilum.
3. Efnahagslegar forsendur
Til að axla þá ábyrgð sem félagið hefur tekist á hendur þarf starfsemin að skila arði. Arðsemi er forsenda rekstursins og þar með þeirra starfa sem hjá félaginu hafa skapast. Það er grundvallarviðhorf félagsins að hagsmunum samfélagsins sé best þjónað með markaðsbúskap. Ákvarðanir um fjárfestingar og framtíðarstefnu eiga að grundvallast á öryggi. Þær eiga ekki að einskorðast við efnhagslegar forsendur heldur þarf einnig að taka mið af umhverfissjónarmiðum.
4. Heiðarleiki
Skeljungur hf. leggur áherslu á heiðarleika og sanngirni í viðskiptum og gerir ráð fyrir því sama af þeim sem félagið skiptir við. Félagið og starfsmenn þess taka hvorki við né greiða neitt það sem flokkast getur undir mútur. Starfsmönnum Skeljungs hf. ber að forðast hagsmunaárekstra milli eigin fjármála og þátttöku í viðskiptum félagsins. Öll viðskipti Skeljungs hf. skulu tilgreind í reikningum félagsins í samræmi við viðurkenndar starfsreglur og háð endurskoðun.
5. Stjórnmálastarfsemi
Skeljungur hf. vinnur að viðskiptamarkmiðum sínum eftir ábyrgum og lögmætum leiðum. Félagið greiðir ekki fé til stjórnmálaflokka, stjórnmálasamtaka eða fulltrúa þeirra og hefur ekki afskipti af flokkspólitísku starfi. Skeljungur hf. áskilur sér hins vegar rétt til að láta í ljósi afstöðu sína til málefna sem hafa bein áhrif á félagið, starfsmenn þess, viðskiptavini eða hluthafa. Félagið leggst ekki gegn því að einstaka starfsmenn taki þátt í samfélagslegum verkefnum td. til með því að bjóða sig fram til opinberra embætta, svo lengi sem slíkt telst viðeigandi í ljósi ríkjandi aðstæðna á hverjum tíma.
6. Hollusta, öryggi og umhverfi
Skeljungur hf. vill stuðla að sjálfbærri þróun og leitast við að vinna á kerfisbundinn hátt að málum sem snerta hollustuhætti, öryggi og umhverfisvernd. Félagið stefnir að stöðugt bættum árangri á þessu sviði og nálgast úrlausn slíkra viðfangsefna á sama hátt og annarra verkefna. Það setur sér markmið um endurbætur og greinir opinberlega frá árangri.
7. Samfélagið
Eitt mikilvægasta framlag fyrirtækja til samfélagsins felst í að reka grundvallarstarfsemi sína með eins skilvirkum hætti og frekast er unnt. Þetta er keppikefli Skeljungs hf. sem auk þess leggur lið margvíslegum samfélagslegum verkefnum, sem horfa til heilla fyrir land og lýð, þótt þau snerti ekki starfsemi félagsins með beinum hætti.
8. Samkeppni
Skeljungur hf. styður frjálsa samkeppni og leitast við að stunda sanngjarna og siðlega samkeppni innan gildandi samkeppnislaga. Félagið kemur ekki í veg fyrir að aðrir geti stundað frjálsa samkeppni innan löglegra marka.
9. Upplýsingamiðlun
Skeljungur hf. telur opna og frjálsa miðlun upplýsinga nauðsynlega enda hefur starfsemi félagsins mikil áhrif á fjölmarga einstaklinga og á samfélagið í heild. Þess vegna starfrækir Skeljungur hf. öflugt upplýsingakerfi sem miðlar upplýsingum um starfsemi félagsins til hlutaðeigandi aðila. Að sjálfsögðu ber að taka eðlilegt tilliti til viðskiptaleyndar og kostnaðar.
Umhverfisstefna
Umhverfisstefna (PDF skjal)