Samstarfsaðilar

18.12.2007

KKÍ (Körfuknattleikssamband Íslands)

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) og Skeljungur endurnýjuðu samstarfssamning sinn á blaðamannafundi sem haldinn var á Grand hótel. Skeljungur mun verða aðalstuðningsaðili landsliða Íslands í körfubolta til ársloka 2010.

Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ, og Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri Skeljungs, skrifuðu undir samninginn. Báðir aðilar vænta mikils af samstarfinu í framtíðinni en Skeljungur mun koma að starfi landsliðanna, úrvals og afreksbúða KKÍ.

Skeljungur hefur verið einn af samstarfsaðilum KKÍ frá árinu 2004. Samningurinn er einn af þeim stærstu sem gerður hefur verið við KKÍ og sá stærsti sem KKÍ hefur gert í tengslum við landsliðsstarf sitt. Með þessum öfluga stuðningi Skeljungs getur KKÍ eflt allt það starf sem er í kringum bestu og efnilegustu leikmenn landsins í körfubolta.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Um Skeljung » STYRKIR » Samstarfsaðilar » Samstarfsaðilar
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi