Skeljungur er krefjandi vinnustaður þar sem samvinna er lykillin að því að ná árangri. Skeljungur leggur kapp við að starfsmenn séu metnaðarfullir, glaðlyndir, traustir og heiðarlegir. Öll okkar verk hvort sem þau séu stór eða smá bera vott um metnað og hagkvæmni. Við viljum að viðskiptavinir upplifi hraða og góða þjónustu. Jákvæðni og gott viðmót einkenna störf okkar og skilar það okkur ánægðum viðskiptavinum og samstarfsfólki. Við reynum ávallt að fara fram úr væntingum viðskiptavina og skapa góðan starfsanda.
Með skipulegri nýliðamóttöku er nýjum starfsmönnum gert kleift að ná fljótt og vel tökum á störfum sínum.
Lögð er áhersla á að kynna fyrirtækið og starfsemi þess fyrir starfsmönnum og gera þeim grein fyrir réttindum sínum og skyldum og ábyrgð.
Áreiðanleiki
Metnaður
Bros