Sagan

Tímabilið 1925-1934

Gjörbreyting varð á verslun með olíuvörur þegar einkaleyfi Landsverslunar var numið úr gildi árið 1925. Skömmu síðar var forveri Shell á Íslandi, Olíusalan formlega stofnuð.
Gjörbreyting varð á verslun með olíuvörur þegar einkaleyfi Landsverslunar var numið úr gildi árið 1925. Skömmu síðar var forveri Shell á Íslandi, Olíusalan formlega stofnuð.

1925
Einkaleyfi Landsverslunar til verslunar með olíuvörur numið úr gildi.

1927
Landsverslunin hættir störfum.

1927
Olíusalan hf. formlega stofnuð 23. ágúst, en Olíusalan var undanfari HF Shell á Íslandi. Aðal hvatamenn að stofnun Olíusölunnar hf. og HF Shell á Íslandi voru fjórir íslenskir athafnamenn. Þeir Björgúlfur A. Ólafsson læknir, Hallgrímur Benediktsson stórkaupamaður, Hallgrímur A. Tuliníus stórkaupmaður og Gísli J. Johnsen konsúll. Fimmti Íslendingurinn var með í hópi fyrstu íslensku hluthafanna í HF Shell á Íslandi en það var Magnús Guðmundsson hæstarréttarlögmaður. Samanlagt áttu þeir fimm menningarnir 51 prósent hlutafjár í HF Shell á Íslandi á móti 49 prósenta eign Shell samsteypunnar. Framkvæmdir við olíustöðina í Skerjafirði hefjast.

1927
Olíuskipið Donax landar 5.000 tonnum af olíu á geymana í Skerjafirði 21. desember. Þetta var í fyrsta skipti sem olía var flutt hingað til lands í tankskipi.

1928
Hlutafélagið Shell á Íslandi stofnað 14. janúar. Framkvæmdum í Skerjafirði lokið. Strax á fyrsta starfsári sínu lét HF Shell á Íslandi hefja byggingu olíugeyma á ýmsum stöðum utan Reykjavíkur og réð umboðsmenn til að sjá um þær. Þá lét félagið smíða Skeljung fyrsta, sem var 223ja tonna tankskip til að flytja olíu í lausu frá birgðastöðinni í Reykjavík út um landið. Segja má að tilkoma þessa skips og olíugeymavæðingin hafi valdið byltingu í allri dreifingu eldsneytis.




Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Um Skeljung » Sagan » Sagan
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi