Skeljungsstöðin við Laugaveg fagnaði 60 ára afmæli 4. júní sl. Á þeim tíma var hún sú stærsta og fullkomnasta á landinu. Í dag er stöðin þekktust fyrir að vera sviðsmynd hinna vinsælu þátta Næturvaktarinnar.
Ný smurolíuhandbók kom út í september sem inniheldur upplýsingar um allar þær tegundir Shell olía sem Skeljungur selur. Hér er hægt að nálgast bókina.
Select í Smáranum fagnaði 10 ára afmæli 2. október. Stöðin var sú fyrsta sem hönnuð var frá grunni sem Select stöð. Verslunin í Smáranum hefur frá upphafi verið opin allan sólarhringinn.
Svokölluð Smart DVD leiga var opnuð á árinu á Select við Litlatún í Garðabæ og hjá Shell á Akranesi. Viðskiptavinurinn velur og greiðir í gegnum tölvu á staðnum eða í gegnum tölvuna heima og fer og sækir.
Skeljungur var með bás á sýningunni Ferðalög og frístundir í Laugardalshöll þar sem þægindi og kostir þess að vera með Staðgreiðslulykil Skeljungs var m.a. kynnt.
Skeljungur hélt áfram að styðja við bakið á hinum ýmsu góðgerðarmálum. Shellmótið í Eyjum - þar sem 7. flokkur drengja í knattspyrnu öttu kappi - var vel sótt eins og svo oft áður en þetta var í 18. skiptið sem Skeljungur styrkir mótið.