Sagan

Árið 2006

Þriðja árið í röð varð breyting á eignarhaldi Skeljungs. Þann 1. mars var Skeljungur kominn í eigu Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar.


Rekstur bensínstöðva Shell og Select, sem hafði verið í höndum 10-11, kom aftur til Skeljungs.

 

Sölulager var opnaður að Hólmaslóð 10 til að auðvelda viðskiptavinum að nálgast þær helstu vörur sem Skeljungur selur. Þá hófst sala á Shell V-Power 99 oktana bensíni á ný eftir nokkurt hlé. Shell V-Power er með hæstu oktantölu sem boðin er á almennum markaði. Enginn annar framleiðandi býður sambærilegt blýlaust bensín og Shell V-Power.

 

Ný Shell kort fyrir stúdenta, svokölluð afsláttarkort, fóru í dreifingu til nemenda við Háskóla Íslands, Háskólann á Bifröst og Háskólann í Reykjavík.

 

Að venju tók Skeljungur þátt í að styrkja hin ýmsu verkefni. Í kjölfar þess að Styrktarfélag krabbameinsveikra barna fékk bíl til afnota í eitt ár ákvað Skeljungur að styrkja félagið með fríu eldsneyti. Skeljungur kostaði útsendingar Formúlu 1 í Sjónvarpinu fjórða árið í röð. Þá var gert samkomulag við Öryrkjabandalag Íslands um að veita öllum félagsmönnum sjálfsafgreiðsluafslátt af eldsneyti afgreitt með fullri þjónustu á Shell stöðvunum um allt land.

 

Skeljungur og Umferðarstofa undirrituðu í maímánuði samstarfssamning vegna verkefnisins Vel á vegi stödd í vinnunni. Verkefnið miðar að bættum akstursháttum bílstjóra hjá fyrirtækjum sem eru með marga bíla í rekstri og í daglegri umferð. 

 

Skeljungur stóð fyrir skemmtilegum sumarleik fyrir börn í samstarfi við Latabæ. Vikulega voru dregnir út 50 vinningshafar en aðalvinningar sumarsins voru 10 sérmerkt Latabæjarreiðhjól.

 

 





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Um Skeljung » Sagan » Sagan
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi