Sagan

Árið 2007

Kaup á Shell í Færeyjum, nýtt Shell V-Power og gott samastarf við aðila bæði í þágu góðgerðarmála og annars einkenndu árið 2007.

Í maí festi Skeljungur kaup á P/F Føroya Shell sem verið hefur í eigu Shell International Petroleum Company Limited. Starfsemin í Færeyjum verður áfram rekin undir vörumerki Shell líkt og hér á landi.

Í byrjun árs hóf Skeljungur sölu á tilbúnum hollusturéttum á Select stöðvunum. Verið var að koma til móts við þær kröfur almennings um hollan og næringarríkan mat fyrir þá sem eru á hraðferð.

Skeljungur opnaði nýja bensínstöð að Skriðulandi í Dölum í janúar. Bensínstöðin, sem er sjálfsafgreiðslustöð, er vel í sveit sett vegna staðsetningar sinnar fyrir viðskiptavini Skeljungs á leið til Vestfjarða.

Nýtt og enn betra Shell V-Power kom á markað í maí. Nýja bensínið inniheldur einstaka uppskrift svokallaða "Friction Modification Technology" sem er sú sama og notuð er af liði Ferrari í Formúlu 1 á keppnistímabilinu 2007. Þá er samsetning hins nýja Shell V-Power einnig þróuð til að veita aukna hreinsigetu.

Skeljungur hóf samstarf við ABC kort Netbankans. Framlag Skeljungs er 1,5% af viðskiptum á Shell stöðvum þegar greitt er með ABC kortum. Af þessu rennur 1% beint til ABC barnahjálpar.

Skeljungur hóf einnig samstarf við E-kortið frá SPRON. Líkt og ABC kortið er afsláttur fólginn í endurgreiðslu til handhafa kortanna.

Skeljungur ákvað að leggja sitt af mörkum í mikilvægu átaki gegn óhóflegri mengun með því að styrkja Kolvið sem hvetur fólk til að kolefnisjafna bifreiðar sínar.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Um Skeljung » Sagan » Sagan
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi