Í byrjun árs var gengið frá sölu á Suðurlandsbraut 4 en þar höfðu skrifstofur félagsins verið til húsa frá 1961. Þann 18. júní flutti skrifstofan nær kjarna starfseminnar að Hólmaslóð 8 í Örfirisey. Þá fagnaði Shellstöðin í Skógarhlíð 50 ára afmæli í ágúst en hún var opnuð 1954.
Skeljungur og Sjálfsbjörg gerðu með sér samkomulag um að veita hreyfihömluðum bifreiðaeigendum, handhöfum "stæðiskorta" P-merkis fatlaðra, sjálfsafgreiðsluafslátt af eldsneyti í fullri þjónustu á Shell stöðvum um allt land.
Þann 20. febrúar var gengið frá sölu KB banka á Steinhólum ehf. sem var móðurfélag Skeljungs hf. Kaupandinn var eignarhaldsfélag á vegum Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Í kjölfarið var skipuð ný þriggja manna stjórn sem í sátu nýjir eigendur ásamt Einari Þór Sverrissyni hdl. Þann 25. október eignuðust Hagar allt hlutafé í Skeljungi. Ekki voru gerðar neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs.
Eins og oft áður studdi Skeljungur við bakið á hinum ýmsu samfélagsmálum. Meðal þess helsta má nefna nýjan þriggja ára samning um áframhaldandi samstarf Skeljungs og ÍBV um Shellmótið í Eyjum. Skeljungur hefur verið aðalstyrktaraðili mótsins síðan 1991. Samstarf við Körfuknattleikssamband Íslands varðandi landslið Íslands í körfubolta. Þá var endurnýjaður fjögurra ára samstarfssamningur við KR en Skeljungur hefur verið helsti styrktaraðili þeirra síðan 1992.
25. maí var tekin í gagnið ný endurvinnslustöð fyrir bensíngufur í Örfirisey sem Skeljungur er aðili að. Þá hóf Skeljungur á haustmánuðum sölu á nýjum fjölkornaáburði til bænda, Spretti.
Í júní hlaut Skeljungur umhverfisviðurkenningu Reykjavíkurborgar. Fram kom í rökstuðningi úthlutunarnefndar að Skeljungur hafi unnið lofsvert starf í umhverfis- og öryggismálum m.a. með þátttöku í vetnisverkefninu og samfélagsverkefnum ásamt því að hafa í gangi öflugt starf í öryggismálum.
Í október birti Samkeppnisráð úrskurð sinn um ólögmætt samráð olíufélaganna. Málinu var skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.