Bremsuvökvi og frostlögur
| Heiti | Lýsing |
|---|
| Donax ZB | Háþróaður vökvi fyrir hemla og vökvaknúnar kúplingar. Donax ZB er sérstaklega gerður til að þola þann mikla hita sem getur myndast í diskahemlakerfum nútímabíla við mikið álag. Suðumark minnst 260 °C. Gæðastaðlar : DOT 3, DOT 4, DOT 5, SAE J17031og ISO 4925. |
| GlycoShell (blár vökvi) | Frost- og kælivökvi gerður úr monoetýlenglýkól vökva fyrir kælikerfi í flestum sprengihreyflum, að þeim undanskildum sem þurfa silikatfrían vökva (m.a. nýrri VW bílar). Glycoshell (blár vökvi) og Glycoshell SF (rauður vökvi) mega ekki blandast. Uppfyllir kröfur G48 ásamt VW G11 vökva. |
| GlycoShell SF | Frost- og kælivökvi gerður úr monoetýlenglýkól vökva, sérstaklega þróaður fyrir álmótora þar sem gerðar eru kröfur um silikatfrían vökva, t.d. í nýrri VW bílum. Glycoshell (blár vökvi) og Glycoshell SF (rauður vökvi) mega ekki blandast. Uppfyllir kröfur G30 ásamt VW G12 vökva. |
Þú ert hér:
Fyrirtæki »
Smurolíur og þjónusta »
Ýmsar bílavörur »
Bremsuvökvi og frostlögur