Öryggið hefur forgang. Okkur ber að huga að öryggi þeirra sem með okkur ferðast sem og annarra í umferðinni. Hér eru nokkur einföld atriði og varúðarráðstafanir sem geta skipt sköpum.
Betra útsýni með Rain-X
Vertu viðbúinn
Oft og tíðum er hægt að koma í veg fyrir bilanir og vandamál með fyrirhyggju. Einföld atriði eins og sprungin dekk, tómir rafgeymar og lítið bensín geta gert annars þægilega ferð að martröð. Auka dekk, startkaplar, nægilegt bensín - það er svo auðvelt að vera viðbúinn, afhverju að taka áhættu?
Hlustaðu á bílinn þinn
Flestir bílar gefa vísbendingar sem eru nokkuð áreiðanlegar. Viðvörunarljós sem gefa til kynna skort á bensíni eða olíu þarf alltaf að taka alvarlega. Þó svo að einungis vanti rúðuvökva getur það þýtt slæmt skyggni og þar af leiðandi yfirvofandi hættu.
Shell selur allar nauðsynlegar tegundir vökva fyrir bílinn þannig að þú getur brugðist fljótt og vel við um leið og bíllinn þinn þarfnast þeirra. Það sem meira er, þýðingarmiklar vörur eins og kæli- og bremsuvökvi hafa farið í gegnum margskonar skoðanir og prófanir af viðurkenndum aðilum. Af hverju að taka óþarfa áhættu?