Tvígengisvélar eru smurðar þannig að olíunni er blandað í bensínið, ýmist beint í bensíntankinum eða úr sérstökum olíugeymi þaðan sem henni er úðað inn í soggreinina. Olían berst með bensíngufunni inn í sveifarhúsið þar sem hún þéttist og smyr strokka og legur. Fjórgengisvélar eru smurðar eins og bílvélar, þ.e.a.s. olían er í pönnu undir sveifarhúsinu og er dælt þaðan á hina einstöku smurstaði.
Mikilvægustu eiginleikar tvígengisolíu eru að vinna gegn koks- og lakkmyndun á stimplum og í brunahólfinu, ásamt því að mynda öfluga og slitverjandi olíufilmu.
Loft- og vatnskældar tvígengisvélar í mótorhjólum, vélsleðum, sláttuvélum, vélsögum, o.s.frv. ganga venjulega heitari en utanborðsmótorar. Þessar vélar þurfa þess vegna olíur með annars konar bætiefnum fyrir háan vinnuhita heldur en þær sem notaðar eru í olíur fyrir utanborðsmótora. Tvígengisolíur fyrir vélar á landi má þess vegna ekki nota á utanborðsmótora.
Í grundvallaratriðum er fjórgengis mótorhjólavél smækkuð bílvél sem í mörgum tilvikum getur notað samskonar olíu. Flest japönsk fjórgengis mótorhjól hafa þó sameiginlega olíu fyrir vél og gírkassa þar sem mótorolían smyr líka gírkassann. Kúplingin er byggð inn í gírkassann og er þar af leiðandi einnig "smurð" af olíunni. Af þeim sökum mega viðnámseiginleikar olíunnar ekki vera þannig að kúplingin snuði (sé of "sleip").
"Bílaolíur" má nota í mörgum tilvikum, þó að oftast sé æskilegt að nota sérþróaðar olíur fyrir mótorhjól. Sérhæfða olían er þróuð til að uppfylla kröfur um smur- og notkunareiginleika í bæði mótor og gírkassa, ásamt því að taka tillit til krafna um sérstaka viðnámseiginleika fyrir kúplingu, þegar hún er byggð inn í gírkassann.
SHELL ADVANCE olíur og viðhaldsvörur
Shell Advance er fjölskyldunafn á olíum og viðhaldsvörum fyrir mótorhjól, vélsleða og tvígengisvélar almennt.
Hér finnur þú nánari lýsingu á olíu og viðhaldsvörum fyrir mótorhjól og vélsleða