Sjálfskiptingin gerir miklar kröfur til olíunnar, bæði sem tengslisvökva til að yfirfæra vélaraflið, vökvakerfaolíu til gírskiptingar og sem smurolíu í skiptingunni. Olían verður að vera léttrennandi við gangsetningu í kulda til að tryggja auðvelda gírskiptingu. Jafnframt verður hún að vera efnafræðilega stöðug og þola háan hita í langan tíma án þess að efnasambönd hennar brotni niður og olían tapi eiginleikum sínum.
Sérstök krafa sem sjálfskiptiolían verður að uppfylla er um rétta viðnámseiginleika ("núningseiginleika") í diskakúplingum og bremsureimum. Ef olían veitir of mikið viðnám (er of "þurr") þegar kúplast saman við gírskiptingu, verður tengingin of skörp með hörðu viðbragði og miklu höggálagi í gírkassanum. Ef olían veitir of lítið viðnám (er of "hál") verður tengitíminn of langur þannig að kúplingin snuðar, hitnar og slitnar, eða gírskiptingin sjálf gengur illa. Af þessum ástæðum verður olían að hafa viðnámseiginleika sem hæfa sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingaolíur eru oft nefndar "ATF olíur" (Automatic Transmission Fluid). Olíurnar eru venjulega rauðar á litinn.
| Heiti (Lýsing) | Gæðastaðlar | SEA þykkt | Seigja 40°C | mm2/s 100°C | Seigju- tala | Rennslis mark |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Donax TXSynþetísk olía, rauðlituð, fyrir sjálfskiptingar, vökvastýri og ýmis vökvakerfi. Olían hefur afburða góða rennsliseiginleika. | GM ATF Dexron IIE/III, Ford Mercon, MB 236.9, ZF TE-ML 03D, 04D, 14B, 16L, 17C, Voith 55.6336.30 (G1363), MAN 339 Type F, Allison C4. | 33,2 | 7,2 | 189 | -48 | |
| Donax TASjálfskiptiolía fyrir fólks- og vörubíla, vökvaskiptingar, vökvastýri og ýmis vökvakerfi í bílum, vinnuvélum og skipum. Olían er rauð á litinn og hét áður Dexron II. | GM Dexron IID. Ford Mercon. Mercedes Benz 236.7. Voith 55.6335.30 (G607). Allison C4, Caterpillar TO-2. MAN 339 Type D. ZF TE-ML 03D, 04D, 11A, 14A, 17C. | 35 | 7,2 | 141 | -45 | |
| Donax TFRauð olía fyrir sjálfskiptingar í bílum, vökvaskiptingar og vökvakerfi í bílum og vinnuvélum. Sérstakl. ætluð á Borg-Warner skiptingar. | Rauð olía fyrir sjálfskiptingar í bílum, vökvaskiptingar og vökvakerfi í bílum og vinnuvélum. Sérstakl. ætluð á Borg-Warner skiptingar. | 38,06 | 7,8 | 180 | -45 | |
| ATF XSSynþetísk sjálfskiptiolía þróuð með nýjustu tækni sem þekkist við sjálfskiptiolíur og notast þar sem krafist er GM Dexron II. Ætluð fyrir sjálfskiptingar/gírkassa í stærri farartækjum eins og rútum og vörubílum. Þolir vel háan hita og mikið álag, vinnur gegn sliti og freyðingu. Gefinn upp fyrir lága olíuskiptatíðni. Ekki lagervara. | Voith 55.6335.30 (G607) og Voith 55.6335.30 (G1363), ZF TE-ML 9X, 14C, 16M B 236.8, Ford Mercon V, Dexron IIE Ford M2C 138-CJ/166H, Ford Mercon, GM Allison C4 | 33 | 7,4 | 201 | -51 | |
| ATF 3403-M 115Synþetísk sjálfskiptingaolía sérstaklega þróuð fyrir Mercedes Benz. Uppfyllir MB 235.10. Ekki lagervara. | 34,5 | 7,4 | 189 | -45 | ||
| Donax TMFjölhæf olía fyrir sjálfskiptingar, vökvaskiptingar, og vökvakerfi í bílum og vinnuvélum. | GM ATF A Suffix A olía, MB 236.2, Ford M2C 41A/B, GM Allison C2/C4, MAN 339 Type A. | 38,5 | 7,28 | 156 | -45 |