Mótorolíur fyrir þyngri farartæki

Olíur sem standast meiri kröfur

Aflmiklar díselvélar, með forþjöppu, í rútum, vörubílum og vinnuvélum ganga venjulega við aðrar aðstæður, þ.e hærri vinnuhita og lengri tíma milli olíuskipta heldur en vélin í fólksbílum. Þess vegna þarf smurrolían að uppfylla aðrar kröfur en smurolían á bensín- og díselvélum í minni farartækjum.

Þekkt vandamál í stærri díselvélum, með forþjöppu, er tilhneigingin til háhita-koksmyndunar á efri hluta stimplanna. Þessar koksútfellingar geta orsakað strokkslit ("slífaslípun") sem leiðir til aukinnar olíunotkunar og styttri endingartíma slífa. Smurolían fyrir þyngri fartæki er sérstaklega hönnuð til þess að fást við þetta vandamál, að koma í veg fyrir koksmyndun og þann skaða sem henni fylgir. Þess vegna er efnasamsetning hennar ekki hentug fyrir bensín- eða díselvélar í minni faratækjum.

Þar sem olíuskiptatíðni er yfirleitt lág í þyngri fartækjum (sem nú er > 100.000 km fyrir rútur og vörubíla), verður smurolían einnig að geta leyst upp og tekið í sig meira af sóti og öðrum brunaúrgangi heldur en önnur smurolía.

Smurolía fyrir stærri díselvélar verður þar af leiðandi að vera sérstaklega hönnuð til þess að hindra koksmyndun á stimplunum, þola háan hita í langan tíma, endast lengi ásamt því að geta innihaldið mikið af sóti og öðrum brunaúrgangi vegna hinnar lágu olíuskiptatíðni.

SHELL RIMULA fyrir díselvélar

Shell Rimula er fjölskyldunafnið á smurolíu fyrir fjórgengisvélar með afgasforþjöppu (túrbó) í þyngri fartækjum eins og rútum, vörubílum og vinnuvélum, þróuðum af fremsta smurefnaframleiðanda heims, sem er leiðandi í rannsóknum, þróun og tækni. Að baki liggja umfangsmiklar prófanir við allar kringumstæður, allt frá heimskautakulda til brennandi eyðimerkurhita.

Heiti (Lýsing)GæðastaðlarSEA þykktSeigja 40°Cmm2/s 100°CSeigju- talaRennslis mark
Rimula UltraSynþetísk SHPD olía sem veitir hámarks slit og tæringarvörn fyrir allar nútíma evrópskar og japanskar túrbó díselvélar í vörubílum, langferðabílum, strætisvögnum og vinnuvélum. Veitir sérlega góða vörn gegn slífaslípun og útfellingum. Stenst ítrustu kröfur um olíuskiptatíðni og stöðugleika. Afburða heilsársolía við erfiðustu akstursskilyrði. Hámarksárangur í Euro II og III mótorum. ACEA E3/E4/E5**), API CF, Mercedes Benz 228.5, Volvo VDS-2/VDS-3*), MAN M3277, Scania LDF (10W-40), RVI RXD (10W-40), DAF HP-1/HP-2 (5W-30), MTU Type 3. *) VDS-3 fyrir SAE 10W-40 Q1/Q2 2004. **) ACEA E5 Q2/Q3 2004.5W-30 68 11,6 164 -39
Rimula UltraSynþetísk SHPD olía sem veitir hámarks slit og tæringarvörn fyrir allar nútíma evrópskar og japanskar túrbó díselvélar í vörubílum, langferðabílum, strætisvögnum og vinnuvélum. Veitir sérlega góða vörn gegn slífaslípun og útfellingum. Stenst ítrustu kröfur um olíuskiptatíðni og stöðugleika. Afburða heilsársolía við erfiðustu akstursskilyrði. Hámarksárangur í Euro II og III mótorum.Gæðastaðlar: ACEA E3/E4/E5**), API CF, Mercedes Benz 228.5, Volvo VDS-2/VDS-3*), MAN M3277, Scania LDF (10W-40), RVI RXD (10W-40), DAF HP-1/HP-2 (5W-30), MTU Type 3. *) VDS-3 fyrir SAE 10W-40 Q1/Q2 2004. **) ACEA E5 Q2/Q3 2004.10W-409014,3165-36
Rimula SuperOlía í hæsta gæðaflokki, byggð á náttúrlegri grunnolíu, fyrir allar aflmiklar evrópskar, japanskar og amerískar fjórgengis túrbó díselvélar með lága olíuskiptatíðni. Besta vörnin fyrir vélina, þegar jarðefnaolía er valin.API CI-4/CG-4/CH-4/CG-4/CF-4/CF, ACEA E3/E5, MB 228.3, MAN M 3275, Volvo VDS-2/VDS-3 , RVI RDL, Mack EO-M Plus, Cummins CES 20071/72/76/77/78, Caterpillar ECF-1, Global DHD-1, Allison C4. 15W-4011014,7138-33
Rimula X (fjölþykktarolía)Hágæðaolía, byggð á náttúrlegum grunni, framúrskarandi vörn fyrir vélar með olíuskiptatíðni í meðallagi. Einnig til sem einþykktarolíur.Rimula X 10W-30: API CH-4/CG-4/CF-4, GM Allison C4, ZF TE-ML 03A. Rimula X 15W-40: API CH-4/CG-4/CF-4, ACEA E3, MB 228.3, Volvo VDS-2, MAN M 3275, RVI RD, MTU Type 2 serie 2000/4000, Cummins CES 20071/72/75, Mack EO-M, Allison C4. 15W-40 107 14,5 139-33
Rimula X (fjölþykktarolía)Hágæðaolía, byggð á náttúrlegum grunni, framúrskarandi vörn fyrir vélar með olíuskiptatíðni í meðallagi. Einnig til sem einþykktarolíur. Gæðastaðlar: Rimula X 10W-30: API CH-4/CG-4/CF-4, GM Allison C4, ZF TE-ML 03A. Rimula X 15W-40: API CH-4/CG-4/CF-4, ACEA E3, MB 228.3, Volvo VDS-2, MAN M 3275, RVI RD, MTU Type 2 serie 2000/4000, Cummins CES 20071/72/75, Mack EO-M, Allison C4. 10W-307511,5145-36



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fyrirtæki » Smurolíur og þjónusta » Smurolíur fyrir farartæki » Mótorolíur fyrir þyngri farartæki
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi