Mótorolíur fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla

Vél í bifreiðum verður að þola háan hita og mikið álag (t.d. vegna mikils farmþunga, aksturs á hraðbrautum, kerrudráttar o.s.frv.), en hún vinnur oft undir litlu álagi í stuttum ferðum þar sem hún nær sjaldan fullum vinnuhita.

Þegar vélin er köld þá nýtist eldsneytið ver og stundum brennur það ekki alveg en smurolían tapar eiginleikum þegar hálfbrunnið eldsneyti og súrt vatn, sem þéttist í vélinni, blandast smurolíunni. Tíðar kaldar gangsetningar og stutt keyrsla með kaldri vél slítur vélinni mest.

Smurrolían verður þess vegna að vera sérstaklega hönnuð til að verja gegn sliti, bæði við kalda gangsetningu og mikið álag. Hún þarf að þola hátt hitastig og um leið verja gegn slamm- og ryðmyndun af völdum skaðlegra úrgangsefna frá eldsneytisbrunanum.

Díselvélar í fólksbílum skila frá sér oft meira sóti en bensínvélar (vegna "einfaldarra" eldsneytis). Smurolía fyrir dieselvél þarf því að ráða vel við að vinna gegn því að hún þykkni vegna sóts. Bestu hágæða smurolíurnar má nota á bæði bensín- og díselvélar í fólksbílum.

SHELL HELIX fyrir fólksbíla, sendibíla og jeppa

Shell Helix er fjölskyldunafn á smurolíum fyrir fólksbíla, jeppa og og flestar gerðir sendibílar. Smurolíurnar eru þróaðar af heimsins fremsta framleiðanda smuórolía, sem er leiðandi í rannsóknum, þróun og tækni. Að baki liggja umfangsmiklar prófanir við allar kringumstæður, allt frá heimskautakulda til brennandi eyðimerkurhita.

Heiti (Lýsing)GæðastaðlarSEA þykktSeigja 40°Cmm2/s 100°CSeigju- talaRennslis mark
Helix UltraSynþetísk léttgengisolía, fyrir þá sem gera mestar kröfur. Fyrir flestar nútímavélar, með eða án forþjöppu, einnig fyrir díselvélar með og án forþjöppu. Olían tryggir létta gangsetningu og skjóta smurningu við lágt hitastig, eins öfluga smurningu við hátt hitastig. Formúla 1 gæði sem fara langt fram úr kröfum vélaframleiðenda.API SL/CF, ACEA A3/B3/B4, VW 500.00/505.00/502.00, VW 503.01 (5W-30), MB 229.3, PSA E-98 Level 3, og kröfur japanskra bílaframleiðenda. Viðurkennd m.a. af Ferrari, Mercedes, Porsche og Rover. Uppfyllir BMW "Long Life -98" og "Special List" kröfur.5W-4072,513,1185-48
Ultra Racing Notuð þegar þörf er fyrir þykka olíu í mótorum sem eyða óvenju mikilli olíu, þegar vélarhiti er óvenjuhár eða í kappakstri þar sem olíuþynning vegna eldsneytisblöndunar getur valdið vandræðum. Sérstaklega mælt með henni á Ferrari F 360.API SL/CF, ACEA A3/B3/B410W-6016324,6183-45
Helix Ultra X Synþetísk eldsneytissparandi olía með langan notkunartíma. Sérstaklega þróuð fyrir ýmsar gerðir VW/Audi fólks- og vörubíla.Helix Ultra X 0W-30 stenst meiri kröfur en staðlarnir: ACEA A1/B1-98, ACEA A5/B5-02, VW 503.00, 506.00 og 506.01, (VW LongLife 2).0W-3052,69,6164-42
Helix Plus Hálfsynþetísk léttgengisolía sem veitir afburða slit- og tæringarvörn í nútímavélum við allar aðstæður. Einnig fyrir vélar með og án forþjöppu. Fyrir þá sem vilja nota hágæðaolíu, en ekki greiða kostnaðinn við synþetíska olíu. API SL/CF, ACEA A3/B3, MB 229.1, VW 500.00/502.00/505.00, Peugeot/Citroen PSA E-95/D-95, JASO "SG" og kröfur japanskra bílaframleiðenda.10W-4090,814,1160-33
Helix SuperHágæða smurolía fyrir þá sem er að leita eftir mestum gæðum fyrir lægsta verðið. API SJ/CF, ACEA A2/B10W-4094,814,3155-33
Helix Diesel Ultra Einstök synþetísk léttgengisolía fyrir hraðgengar díselvélar, með eða án forþjöppu, í fólksbílum og minni vöru- og fólksflutningabílum. Olían hentar sérstaklega fyrir jeppa sem þurfa góða smurolíu við erfið skilyrði.API CF, ACEA B3/B4, MB 229.3, VW 505.00, BMW Spesial Oil List, PSA D. Viðurkennd af Mercedes fyrir díselvélar með og án forþjöppu. 5W-3072,612,3169-33
Helix Diesel Plus Hálfsynþetísk léttgengisolía fyrir hraðgengar díselvélar, með eða án forþjöppu, í fólksbílum og minni vöru- og fólksflutningabílum. Heilsársolía sem tryggir öfluga smurningu við öll akstursskilyrði.API CF, ACEA B3, MB 229.1, VW 505.00 (01.97), BMW Spesial Oil List, PSA D. Viðurkennd af Mercedes fyrir díselvélar með og án forþjöppu.10W-4087,314,3169-33



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fyrirtæki » Smurolíur og þjónusta » Smurolíur fyrir farartæki » Mótorolíur fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi