Olíurannsóknir - ýmist eru sýni rannsökuð af gefnu tilefni, t.d. vegna gruns um mengun í olíunni eða þar sem fylgst er kerfisbundið með smurolíunni og um leið ástandi vélarinnar. Olíurannsóknum á vegum Skeljungs má skipta í þrjá hluta.
RLA rannsóknirnar fara fram á rannsóknarstofu í Englandi og Shell LubeAnalyst fer fram í Frakklandi og eru niðurstöður tölvukeyrðar í móðurtölvu þar sem safnað er öllum upplýsingum sem smurolíusýnið getur gefið um ástand vélarinnar. Með samanburði við fyrri rannsóknir, gögn í tölvubönkunum og upplýsingar um samskonar vélar í öllum heimshornum má finna bilanir eða, það sem e.t.v. er mikilvægara, yfirvofandi bilanir og greina hvar er að. Þannig er hægt að fylgjast með ástandi vélarinnar og gera viðeigandi ráðstafanir þegar bilun vofir yfir og koma í veg fyrir stærra tjón þegar eitthvað hefur brotnað. Nánari upplýsingar um smurolíurannsóknir veita sölumenn Skeljungs.