Skipaþjónusta

Skipaþjónusta Skeljungs er ætluð viðskiptavinum félagsins, sem starfa að sjávarútvegi - jafnt útgerð sem vinnslu.


Bátadælur Skeljungs - sjá kort



Smurefni fyrir skip og báta




Þessi þjónusta felur m.a. í sér:

  • Ráðgjöf um rétta notkun smurefna og eldsneytis. 
  • Smurkortagerð fyrir skip, báta og fiskvinnslu.
  • Smurolíuafgreiðsla - smurolíunni er dælt um borð í skipin (þegar keyptar eru tunnur) með þar til gerðum búnaði. Á stærri afgreiðslustöðum er nú þegar tvöfaldur dælubúnaður, þannig að tryggt er að vökvakerfaolíur mengast ekki af mótorolíum.
  • Erlend viðskipti - milliganga um eldsneytis- og smurolíukaup íslenskra skipa erlendis. Skeljungur getur að jafnaði útvegað þessar vörur í erlendum höfnum á samkeppnis hæfu verði. Ennfremur veitir Skeljungur erlendum skipum þjónustu í íslenskum höfnum.
  • Tæki og búnaður - milliganga um útvegun sérhæfðs búnaðar sem þarf við notkun og/eða afgreiðslu eldsneytis og smurefna.
  • Olíurannsóknir - ýmist eru sýni rannsökuð af gefnu tilefni, t.d. vegna gruns um mengun í olíunni eða þar sem fylgst er kerfisbundið með smurolíunni og um leið ástandi vélarinnar.
  • Þrifaplön og efna leiðbeiningar, eru gerðar fyrir skip, báta og fiskvinnslur. Skeljungur þjónar viðskiptavinum sínum með hreinsiefnum frá Frigg og öðrum rekstrarvörum sem nota þarf við þrif, hvort heldur er í vélarrúmi eða matvælaiðnaði. 


     


Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fyrirtæki » Skipaþjónusta
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi