Flugþjónusta

Þjónusta á flugvöllum

Skeljungur hf. selur bæði þotueldsneyti (Jet A-1) og flugbensín (Avgas 100LL) og er með þjónustu á flestum stærri flugvöllum landsins samkvæmt alþjóðlegum gæðastöðlum. Á Keflavíkurflugvelli er einungis selt þotueldsneyti, en á flugvöllunum í Reykjavík, Ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum eru báðar tegundir eldsneytis á boðstólum á venjulegum vinnutíma, en auk þess er unnt að semja um útkall.

Einnig eru báðar tegundir eldsneytis fáanlegar hjá einkaaðilum á Rifi og Höfn í Hornarfirði og flugbensín í Borgarnesi og á Bakka en rétt er að hafa fyrirvara á þessum stöðum.

Á Reykjavíkurflugvelli og Bakkaflugvelli er sjálfsafgreiðslubúnaður fyrir flugbensín þar sem menn geta sótt um viðskiptakort og afgreitt sig sjálfir hvenær sem er sólarhringsins.

Flugeldsneyti má skipta í þrjá flokka:

  • Flugsteinolía (aviation turbine fuels), fyrir þotu-hreyfla með eða án loftskrúfu. Hér á landi: Shell Jet A-1.
  • Flugbensín (aviation gasoline), fyrir bulluhreyfla. Hér á landi: Shell Avgas 100LL
  • Aflauki (power boost fluid), til að auka við afl þotuhreyfla við vissar aðstæður. Hér á landi: Methanolmix 45/55.

Upplýsingar um afgreiðslustaði flugeldsneytis og símanúmer.

Upplýsingar um smurefni, smurfeiti og vökvakerfisolíur fyrir flugvélar.



Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fyrirtæki » Flugþjónusta
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi