Frétt

17.01.2012

Umferðaslys í Hestfirði

Á tíunda tímanum í gærkvöld fór dráttarbíll með eftirvagni frá Skeljungi út af veginum í Hestfirði á Vestfjörðum. Ökumaður bílsins var fluttur til læknisskoðunar á sjúkrahúsið á Ísafirði en reyndist hafa sloppið með minniháttar meiðsl.
Óhappið varð eftir að bíllinn lenti skyndilega í mikilli hálku.  Aðstæður á slysstað voru mjög erfiðar, flughálka, rigning og myrkur.  Við óhappið valt eftirvagninn á hliðina og hafnaði bifreiðin ofan á honum.  Farmur í geymi eftirvagnsins var um 39 þúsund lítrar af bensíni. 

Eftir að slökkviliðið hafði tryggt öryggi á staðnum og tekist hafði að koma tankbílum og kranabifreið að slysstaðnum, tókst að rjúfa straum frá bílnum, sem takmarkaði eldhættu.  Hófst þá dæling úr geymi eftirvagnsins og lauk henni á áttunda tímanum.  Eftir slysið hefur nokkurt magn af bensíni lekið frá  öndunarventlum á geymi  eftirvagnsins. 

Eftir að dælingu bensíns lauk hefur verið unnið að því að hreinsa upp bensín sem lekið hefur í skurð við slysstaðinn.   Tekist hefur að koma bíl á réttan kjöl og verður hann fjarlægður eins fljótt og kostur er. 

Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út vegna slyssins og auk starfsmanna og verktaka á vegum Skeljungs  hefur lögreglan og starfsmenn frá Vegagerðinni unnið á vettvangi.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi