Frétt

11.03.2008

Viðskipti í 75 ár

Í desember síðastliðnum heimsótti fríður flokkur frá Skeljungi útgerðarfyrirtækið Níels Jónsson á Hauganesi í tilefni af því að liðin eru 75 ár frá því fyrirtækið hóf viðskipti við Skeljung.

 

Útgerðafyrirtækið Níels Jónsson var stofnað árið 1932 af afa núverandi eiganda og hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu. Fyrirtækið hefur jafnan státað af góðum rekstri og í dag gera þeir út tvo báta, Níels Jónsson EA 106 sem er 30 tonna eikarbátur og Gunnar Níelsson EA 555, 10 tonna plastbát. Um tíma rak fyrirtækið einnig fiskvinnslu en lét af henni fyrir nokkrum árum.

Vegna þessa merka tilefnis heimsóttu Gunnar Karl Guðmundsson forstjóri Skeljungs, Lúðvík Björgvinsson framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, Aðalsteinn Árnason og Þorgils Sævarsson frá svæðisskrifstofu Skeljungs á Akureyri, fyrirtækið og færðu eigendunum, Árna Halldórssyni, Halldóri Halldórssyni og Garðari Níelssyni þakklætisvott fyrir viðskipti í 75 ár.  





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi