Frétt

12.08.2010

Rally Reykjavík á Vesturlandsvegi

Skeljungur, undir vörumerki Shell, styrkir Rally Reykjavík í ár eins og fyrri ár. Um er að ræða þriggja daga keppni sem fer fram þann 12., 13. og 14. ágúst.

 

Öll kvöldin verður viðgerðarhlé þar sem keppendur yfirfara bílana sína á milli sérleiða.

 

Öllum áhugasömum býðst að koma og fylgjast með köppunum yfirfara bílana um kl. 19:30 á Vesturlandsvegi.

 

Samhliða keppninni fer fram "grænt rallý" þar sem keppt er á bílum sem ganga fyrir öðrum orkugjöfum en eldsneyti. Hrönn Harðardóttir, vistaksturskennari, mun keppa fyrir okkar hönd á vetnisbíl Skeljungs.

 

Heimasíða Rally Reykjavík

 




Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi