Frétt

28.06.2010

Shellmótið í Eyjum

Shellmótið í Vestmannaeyjum fór fram um síðustu helgi en 104 drengjalið í sjötta flokki tóku þátt í mótinu. Skeljungur hefur verið aðalstyrktaraðili mótsins frá 1991 eða sl. 19 ár. Um 1.200 drengir tóku þátt í mótinu.

Spilað var á fjórum völlum, Týsvelli, Hásteinsvelli, Þórsvelli og Helgafellsvelli, og því mikið líf og fjör hvar sem litið var. Þetta var í fyrsta skipti sem spilað var á öllum fjórum völlunum á Shellmótinu. Eins og venjulega var viðamikil dagskrá var í boði fyrir drengina s.s. setningarathöfn með flugeldasýningu, kvöldvaka, leikir og margt fleira.

Hægt er að skoða myndir og fleira á heimasíðu mótsins www.shellmot.is.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi