Frétt

02.06.2010
Fögnuður á 50 ára starfsafmæli
Kristín María Níelsdóttir, starfsmaður á fjármálasviði Skeljungs, fagnaði 50 ára starfsafmæli sínu í gær, 1. júní. Í tilefni dagsins var boðið upp á veitingar á skrifstofum félagsins til heiðurs Kristínu en hún er með lengsta starfsaldurinn hjá núverandi starfsfólki Skeljungs.
Sá sem næst kemur í röðinni hefur unnið hjá Skeljungi í 46 ár en síðan eru tveir starfsmenn sem unnið hafa hjá fyrirtækinu í rúmlega 40 ár.
Við óskum Kristínu innilega til hamingju með þennan áfanga og þökkum henni fyrir þessi 50 góðu og farsælu ár í starfi.
Á myndinni má sjá Kristínu ásamt Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Skeljungs.
Þú ert hér:
Fréttir »
Frétt