Eldsneyti það sem um ræðir er tilbúin eldsneytistegund sem á að vera vistvænni auk þess sem það býður upp á betri nýtingu en hefðbundið flugvélaeldsneyti. Nýja eldsneytið, "gas to liquid", mengar mun minna þar sem það gefur ekki frá sér jafn mikið af kolsýringi og nituroxíði auk þess sem eldsneytið inniheldur ekki jafn mikið af mengandi efnum og steinolían.
Ekki var flogið eingöngu á þessu nýja eldsneyti, heldur var einn hreyfill vélarinnar, af fjórum, knúinn nýja eldsneytinu. Líklegt er að þetta sé fyrsta skrefið að enn frekari þróun og rannsóknum á vistvænna eldsneyti fyrir flugrekstur.