Starfsmannafélag Olíufélagsins Skeljungs – sem þá hét – var stofnað 10. janúar 1970. Stofnfélagar voru 65 en af þeim eru enn fjórir starfandi hjá félaginu. Þeir hafa allir unnið hjá Skeljungi í yfir 40 ár og einn þeirra mun fagna 50 ára starfsafmæli í júní.
Guðný Hansdóttir, starfsmannastjóri Skeljungs, segir að það hafi verið mikill heiður að fá að vera viðstödd þegar að félagsmenn voru heiðraðir sem hafa verið samfleytt í 40 ár hjá Skeljungi og í Starfsmannafélaginu. „Af 300 starfsmönnum eru 73 sem hafa unnið lengur en 10 ár og 121 sem hafa unnið lengur en 5 ár. Þetta segir til um að starfsandinn sé góður hér hjá okkur. Hlutafélagið Shell var stofnað 14. janúar 1928 og erum við þakklát fyrir að byggja á mannauði sem hefur unnið svo lengi og ötullega fyrir Skeljung. Reynslan er ómetanleg.“
Frá stofnun hefur Starfsmannafélagið leikið stórt hlutverk í félagslífi starfsfólks Skeljungs. Spilakvöld, skemmtikvöld, jólaskemmtanir fyrir börn félagsmanna og hinar ýmsu starfsmannaferðir voru fastir liðir framan af í starfsemi félagsins. Hin síðari ár hefur jólahlaðborð, jólaball, utanlandsferðir, leikhúsferðir, íþróttir og ýmis önnur afþreying verið í forgangi hjá félaginu.
Þrekvirki var unnið þegar ráðist var í byggingu orlofshúsanna í Skorradal 1973. Húsin voru byggð í sjálfboðavinnu félagsmanna og með dyggum stuðningi Skeljungs. Lá ómæld vinna að baki þeirra þegar þau voru tekin í notkun sumarið 1974. Síðar voru þau seld og tvö sumarhús í Úthlíð keypt í staðinn.
Fyrstu stjórn félagsins skipuðu þau Kristmann Hörður Árnason, formaður, Þorleifur Sigurðsson, varaformaður, Gunnlaugur Helgason, ritari, og þau Edda Garðarsdóttir, og Gísli Gíslason, meðstjórnendur.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri: Einar Örn Ólafsson, forstjóri, Eiríkur Steinþórsson sem hóf störf í maí 1969, Kristín Níelsdóttir sem hóf störf í júní 1960, Sigurbjörn Pálsson sem hóf störf í mars 1969, og Guðný Hansdóttir, starfsmannastjóri. Á myndina vantar Reyni Jósefsson sem hefur unnið hjá Skeljungi frá því í janúar 1964.