Villa í innheimtukerfi Orkunnar í ágúst og september síðastliðnum leiddi til þess að upphæð, sem viðskiptavinur hafði greitt fyrir eldsneytiskaup, var endurgreidd aftur á kort hans skömmu síðar.
Þessi sama villa varð til þess að upphæðin var svo aftur gjaldfærð án þess að viðskiptavinir fengju neina tilkynningu þess efnis og án vitundar starfsfólks Skeljungs föstudaginn 20. nóvember.
Það var aldrei ætlun starfsfólks Skeljungs að gjaldfæra fyrir úttektina með þessum fyrirvaralausa hætti og hörmum við mjög þau óþægindi sem þessi sjálfvirka færsla hefur valdið viðskiptavinum okkar.
Í þeim tilvikum sem viðskiptavinur hefur greitt með debetkorti er hugsanlegt að upphæðin sem gjaldfærð var á föstudaginn hafi verið hærri en inneignin á debetkortareikningnum. Við þá gjaldfærslu hefur bæst svokallaður Fit-kostnaður.
Skeljungur hefur einsett sér, í samvinnu við greiðslumiðlunarfyrirtæki og Reiknistofu bankanna, að endurgreiða allar upphæðirnar og innheimta þær með greiðsluseðli þannig að viðskiptavinir fái lengri frest til að greiða. Einnig mun allur áfallinn Fit-kostnaður vegna úttektanna vera greiddur af Skeljungi. Þannig munu viðskiptavinir ekki bera neinn fjárhagslegan skaða af þessu.
Við bjóðum viðskiptavinum sem urðu fyrir þessum óþægindum og þurfa skjóta úrlausn mála að hafa samband við þjónustuver Skeljungs í síma 444 3100 á skrifstofutíma.
Í framhaldi mun félagið fara rækilega yfir þá þætti í málinu sem fóru úrskeiðis til að reyna að koma í veg fyrir að nokkuð svona geti endurtekið sig.
Við vonum að viðskiptavinir okkar sýni því skilning að við séum að gera allt sem við getum eins fljótt og auðið er til að bæta fyrir þessi leiðu mistök.
Starfsfólk Skeljungs