Frétt

12.11.2009

Starfsafl og SVS semja við Skeljung

Starfsafl og Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks (SVS) undirrituðu í gær samning við Skeljung um lán á fræðslustjóra. Þetta er fyrsti samningurinn um fræðslustjóra þar sem þessir stóru fræðslusjóðir eru í samvinnu um verkefnið. Samningurinn nær til um um 180 starfsmanna Eflingar og um 95 starfsmanna í Landssambandi íslenskra verslunarmanna og VR hjá Skeljungi.

Fræðslustjórinn mun gera þarfagreiningu á fræðslumálum fyrirtækisins og koma með tillögur að fræðslu sérstaklega ætluðum almennum starfsmönnum. Skeljungur rekur fjölda þjónustustöðva um allt land. Fræðslustjórinn sem mun vera að láni til Skeljungs er Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir.

Þetta er fyrsti samningurinn um fræðslustjóra sem Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks er aðili að. Af því tilefni mættu Andrés Magnússon, stjórnarformaður og Stefanía Magnúsdóttir, varaformaður stjórnar sjóðsins, og skrifaði Andrés undir fyrir hönd sjóðsins. Þau lýstu yfir mikilli ánægju með samstarf sjóðanna á þessu sviði.

Fræðslustjóri að láni er heiti verkefnis sem Starfsafl hefur boðið fyrirtækjum síðan í lok árs 2008. Fræðslustjórinn er venjulega sjálfstæður mannauðsráðgjafi sem fer í boði fræðslusjóðanna inn í fyrirtæki í tiltekinn tíma og aðstoðar þau við greiningu á þörfum fyrir fræðslu, lyftir upp þeirri fræðslu sem þegar er í fyrirtækinu og bendir á leiðir til auka fræðslu í framhaldi af greiningunni. Þessi símenntunaráætlun er síðan grunnur að fræðslustarfi viðkomandi fyrirtækis í lengri eða skemmri tíma. Verkefnið hefur mælst vel fyrir meðal fyrirtækja og starfsmanna þeirra.

Á myndinni eru talið frá vinstri: Stefanía Magnúsdóttir varaformaður stjórnar SVS, Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir mannauðsráðgjafi, Andrés Magnússon formaður stjórnar SVS, Guðný Hansdóttir starfsmannastjóri Skeljungs, Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Starfsafls, Valdís A. Steingrímsdóttir verkefnastjóri Starfsafls og Björn Garðarsson verkefnastjóri SVS.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi