Frétt

29.06.2009

Shellmótinu lokið

Nú er Shellmótinu lokið og voru mótshaldarar og þátttakendur mjög ánægðir með yfirstaðna helgi í fótbolta og skemmtun. Það rættist vel úr veðrinu en það var ekki með ljúfasta móti

Margt hefur verið gert til gamans umfram þá keppni sem átt hefur sér stað milli liða í fótbolta.  Svo fátt eitt sé nefnt var hið hefðbundna kappát og nammipokakeppnin. Víkingsmenn úr Reykjavík unnu kappátið en þar var mjög svangur ungur matur sem át sinn skamm á aðeins 1,01 mínútu. KA menn unnu aftur á móti nammipokann stóra en þeir voru næstir því að giska á fjölda stykkja í stútfullum nammipoka sem keppt var um.

Colorado Rush, gestalið mótsins, vann boðhlaupið í ár og voru stoltir af frammistöðunni.  Einnig fór fram spurningakeppni á milli liða. Átta lið svöruðu öllu rétt en aðeins var eitt sigurlið dregið út og voru það liðsmenn í Fram sem hlutu þann heiður.

Auk alls þessa var hápunkturinn, landsliðsleikurinn, leikinn á föstudaginn. Í landsliðið eru bestu keppendur mótsins valdir og er það mikill heiður. Í gegn um tíðina hafa margir okkar bestu knattspyrnumanna keppt í þessum leik á Shellmótinu. 

Eyjamenn létu sitt ekkert eftir liggja og buðu öllum liðum í rútuferð um Eyjuna og í siglingu.  Þetta vakti mikla lukku. Einhverjir skelltu sér jafnfram í sprang að eyjamanna sið. Á meðfylgjandi myndum má sjá þá stemmningu sem ríkti á Shellmótinu í ár.

Til hamingju með mótið og árangurinn, strákar!

Fleiri myndir og upplýsingar er að finna á www.shellmot.is

              





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi