Frétt

25.06.2009

Shellmótið í Eyjum í fullum gangi

Nú er Vestmannaeyjar fullar af drengjum 9 og 10 ára sem mættir eru til þátttöku á Shellmótinu. Shellmótið hefur verið haldið í Vestmannaeyjum frá því 1991 og því orðinn fastur liður í sumarstemmningu Eyjamanna.

Þátttakan í mótinu er metþátttaka en atburðir sem þessir eru einmitt hornsteinn íþróttaiðkunar íslenskra barna. Alls eru 100 lið skráð til leiks að þessu sinni og gera má því ráð fyrir að líf og fjör ríki í Vestmannaeyjum komandi daga. Lífleg dagskrá er á Shellmótinu í ár að vanda skipuleggjenda mótsins. Fyrir utan fótboltakeppnina verður mótssetning með tilheyrandi skrúðgöngu og svo kvöldvaka á föstudagskvöld með alls kyns uppákomum.

Við óskum strákunum í 6. flokki góðs gengis og góðrar skemmtunar á Shellmótinu 2009.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi