Frétt

09.06.2009
Skeljungur endurgreiðir viðskiptavinum
Þeir viðskiptavinir Skeljungs sem keyptu bensín frá kl. 9:30 föstudagsmorguninn 29. maí til kl. 12 mánudaginn 8. júní fá því 12,5 kr. á hvern lítra endurgreiddar. Framkvæmdina má sjá hér að neðan.
Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum greiddu viðskiptavinir Skeljungs nýálögð bensíngjöld í nokkra daga án þess að gjaldtakan væri í raun komin til framkvæmdar. Þegar málið upplýstist brást Skeljungur skjótt við til þess að leiðrétta þennan misskilning við viðskiptavini fyrirtækisins.
Í dag og í gær hefur starfsfólk Skeljungs unnið að lausn til einföldunar fyrir viðskiptavini félagsins í samráði við greiðslukortafyrirtækin. Niðurstaðan er að viðskiptavinir, sem greiddu með kortum, fái endurgreitt inn á kort þeirra. Hún mun eiga sér stað fljótlega í næstu viku. Greiðslur viðskiptavina eru með mismunandi hætti og er því rétt að vekja athygli á hvernig Skeljungur mun koma til móts við þá.
- Til að gera viðskiptavinum auðveldara fyrir að sækja endurgreiðslur sínar mun Skeljungur gera leiðréttingu á Viðskiptakortum og Inneignarkortum viðskiptavina sjálfkrafa.
- Þeir sem eru með Staðgreiðslukort eða Staðgreiðslulykil Skeljungs eða greiddu með debet- eða kreditkorti munu einnig fá leiðréttingu sjálfkrafa með innlögn inn á kortið.
- Eftir standa því þeir sem staðgreiddu. Þeir geta komið með kvittun á næstu bensínstöð Skeljungs eða skrifstofu félagsins. Þar verða teknar niður nauðsynlegar bankaupplýsingar svo hægt verði að endurgreiða þeim.
Athugið að endurgreiðslan á ekki við um díselolíu.
Þú ert hér:
Fréttir »
Frétt