Frétt

04.06.2009

Skeljungsstöðin við Laugaveg 60 ára

„Á laugardag fyrir hvítasunnu var opnuð ný smurnings- og bensínafgreiðslustöð fjelagsins Shell við Laugaveg, fyrir innan Tungu. Er þetta stærsta og fullkomnasta bensínstöð á landinu.“ Þannig var Skeljungsstöðin við Laugaveg 180, „Næturvaktarstöðin“, kynnt til sögunnar í Morgunblaðinu í júnímánuði 1949.

Það voru stoltir starfsmenn Skeljungs, umboðsaðila Shell á Íslandi, sem kynntu stöðina á sínum tíma fyrir viðskiptavinum og það er með ekki minna stolti sem núverandi starfsfólk fagnar 60 ára afmæli stöðvarinnar í dag, 4. júní 2009.

Bensínstöðin er líklegast þekktust sem sviðsmynd hinna vinsælu þátta Næturvaktarinnar, þar sem Georg nokkur Bjarnfreðarson stjórnaði stöðinni af röggsemi mikilli og dugði ekkert minna til þess en fimm háskólagráður! 

Á þeim sextíu árum sem stöðin hefur verið starfrækt hefur að sjálfsögðu margt breyst og þarfir markaðarins kallað eftir nýjungum. Á síðasta ári voru t.d. gerðar miklar endurbætur á húsnæðinu og stöðinni breytt í Select verslun.

Til þess að fagna tímamótunum nú verður m.a. veittur 10 krónu afsláttur af verði hvers lítra af eldsneyti og 20% afsláttur af smurþjónustu. Að auki verða afmælistilboð og gestum boðið upp á heitt kaffi og meðlæti.

„Við erum í hátíðarskapi hjá Skeljungi í dag og mjög stolt af „afmælisbarninu“ okkar,“ segir Einar Örn Ólafsson, nýráðinn forstjóri Skeljungs. „Það er skemmtilegt fyrir mig að það skuli vera eitt af mínum fyrstu verkefnum að fá að fagna þessum áfanga í sögu félagsins með starfsfólki fyrirtækisins og viðskiptavinum okkar.“

Í tilefni tímamótanna verður sköpuð stemmning frá miðri síðustu öld og tónlist frá þeim tíma mun hljóma jafnt utan dyra sem innan. Starfsmenn verða prúðbúnir og fornbílar verða til sýnis og skrauts við stöðina.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi