Frétt

25.05.2009

Fyrsti fjöldaframleiddi vetnisbíllinn

Skeljungur og Íslensk Nýorka opnuðu fyrstu vetnisstöð í heimi við bensínstöð Skeljungs við Vesturlandsveg fyrir sex árum. Á stöðinni er framleitt vetni með rafgreiningu og í byrjun voru þrír strætisvagnar notaðir við tilraunaakstur.

Vonir stóðu til að hér æki fljótlega um götur floti vetnisbifreiða enda Ísland með öll vopn á hendi til þess að verða frumkvöðull á sviði vetnisframleiðslu. Sá dagur gæti nú verið í augsýn, sjö árum eftir að verkefninu var hrundið í framkvæmd.

Japanski bílaframleiðandinn Honda hefur nú sett á markað fyrsta fjöldaframleidda bílinn sem notar vetni sem eldsneyti. Honda FCX Clarity var fyrst kynntur til sögunnar á bílasýningunni í Los Angeles árið 2007. Bíllinn var svo sýndur aftur nýverið og þá í framleiðsluútgáfu. Bíllinn kom á markað í Bandaríkjunum í fyrra og fengu 200 útvaldir viðskiptavinir að leigja bílinn af Honda.

Varla er hægt að segja annað en að bíllinn komi á hárréttum tíma til sögunnar en að baki liggur auðvitað mikið starf við að gera tæknina aðgengilega fyrir fjöldaframleiðslu. Þrýstingurinn er hins vegar orðinn það mikill á Honda að vonast er til að strax á næsta ári verði hægt að auka við framleiðsluna og leigja út fleiri bíla.

Ekki er búist við því að FXC hugmyndin verði komin í almenna sölu fyrr en eftir nokkur ár því bíllinn er enn of dýr. Honda FCX Clarity var nýlega valinn grænasti bíll í heimi á alþjóðlegu bílasýningunni í New York en verðlaunin komu á sama tíma og Honda upplýsti um rannsóknir sem hafa miðað að því að meta tæknina fyrir evrópskar aðstæður með grunnkerfi vetnisstöðva í huga.

Stytt grein úr Morgunblaðinu 8. maí 2009.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi