Frétt

18.05.2009

Sjö met slegin á Shell Eco maraþoninu 2009

Shell Eco maraþonið var haldið í 25. skipti í Lausitz í Þýskalandi 7. - 9. maí sl. Maraþonið er ekki hefðbundið hlaupmaraþon, heldur keppni þar sem nemendur hinna ýmsu skóla á háskólastigi keppa í því að smíða sem sparneytnust farartæki.

Að þessu sinni voru sjö met slegin á þeim þremur dögum sem keppnin stóð yfir og tvö þeirra slegin aftur næsta dag.

Takmarkið með Shell Eco maraþoninu er að veita ungum hönnuðum og verkfræðingum innblástur til að þróa vistvæn farartæki. Takmarkið er þrískipt:

• Að þróa og hlúa að nýsköpun á sviði sparneytni og framtíð samgangna.
• Að hjálpa fræðslustofnunum á sviði tækni að finna hæfileikaríkt fólk til að sækja nám
• Að efla áhuga á tæknimenntun hjá ungu fólki um allan heim

Shell Eco Maraþonið byrjaði árið 1939 sem veðmál á milli nokkurra vísindamanna á rannsóknarstofum Shell í Bandaríkjunum um hver gæti fengið farartæki til að komast sem lengsta vegalengd á sem fæstum dropum af eldsneyti. Keppnin hefur verið haldin með núverandi sniði í Evrópu síðan 1985, þegar hún var haldin í Frakklandi. Þá hefur Ameríkuleggur keppninnar verið haldinn sérstaklega síðan 2007.

Megintakmark keppninnar er einfalt: Að hanna og smíða farartæki sem notar sem minnst eldsneyti til að komast sem lengsta vegalengd. Svo er keppt í ýmsum flokkum, t.d. besta frumgerð bíls, besti borgarbíllinn, minnsti útblástur koldíoxíðs o.fl.

Meðal meta sem slegin voru í keppninni voru:

• Lið frá franska skólanum St Joseph La Joliverie smíðaði IC frumgerð sem fór 3,771 km/l, eða eyddi sem samsvaraði 0,027 lítrum á hundraði.

• Lið frá franska skólanum Lycée Louis Pasquet, bjó til bíl sem gengur fyrir sólarorku og fór 665km á einni kílówattstund.

• Lið frá norska skólanum Norges Tekiske og Naturvitenskapelige Universitet var með sparneytnasta borgarbílinn sem fór 1,246 km/l, eyddi 0,08 lítrum á hundraði.

• Lið frá danska skólanum Danmarks Tekniske Universitet var með sparneytnasta borgarbílinn með sprengikraftsvél, ók 589 km/l, eða eyddi 0,17 lítrum á hundraði.

• Lið frá norska skólanum Norges Tekniske og Naturvitenskapelige Universitet smíðaði farartæki sem gefur frá sér minnst af koldíoxíði, aðeins 2,6 g/km.


Vincent Tertois, tæknistjóri keppninnar sagði árangurinn vera staðfestingu á þeirri miklu vinnu sem nemendurnir hefðu lagt í verkefnið. Framkvæmdastjóri keppninnar, Mark Singer, sagði: „Þetta var frábært fyrsta ár í Þýskalandi. Nemendurnir settu ekki aðeins met í sparneytni, heldur lögðu þeir, styrkveitendur og sjálfboðaliðar sitt á plóginn við að koma Shell Eco maraþoninu til annars hluta Evrópu. Við hlökkum til að gera keppnina árið 2010 eins vel heppnaða og í ár!“

Það er takmark Shell, sem orkufyrirtæki, að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar, og hjálpa til við að tryggja örugga og sjálfbæra orku í framtíðinni. Shell Eco maraþonið veitir innblástur til að finna leiðir við að efla orkunýtingu og veitir tækifæri til að vinna að þessum lausnum á hagnýtan hátt.

• Meira um Shell Eco maraþonið á vef Shell:
http://www.shell.com/home/Framework?siteId=eco-marathon-en&FC2=/eco-marathon-en/html/iwgen/leftnavs/zzz_lhn1_0_0.html&FC3=/eco-marathon-en/html/iwgen/welcome_global.html





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi