Frétt

12.05.2009

Hrós fyrir starfsmann á Shell Gylfaflöt

Ánægður viðskiptavinur hringdi í fyrirtækið og vildi láta vita af ánægjulegum samskiptum við starfsmann á Gylfaflöt.
Viðskiptavinurinn kom á Gylfaflöt í gærkvöldi, í frekar þungu skapi, að eigin sögn. Þegar hann ætlaði að ganga frá eldsneytiskaupum spurði starfsmaðurinn hvort að hann vildi eitthvað fleira, svarið var nei. "En má þá bjóða þér poka?" Aftur var svarið nei. "En má þá kannski bjóða þér upp á heimalagaða ostaköku og kaffi?" Viðskiptavinurinn þáði það með þökkum og gekk út í kvöldið með bros á vör.
Viðskiptavinurinn var afar þakklátur fyrir frábæra þjónustu og vildi að starfsmaðurinn fengi "hrós dagsins" sem hann svo sannarlega fær.




Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi