Frétt

16.01.2008

Skeljungur styrkir Íslending í TRS formúlu mótaröðinni

Skeljungur styrkir þátttöku Kristjáns Einars Kristjánssonar í TRS formúlu mótaröðinni sem hófst á Nýja Sjálandi um síðustu helgi.

Eftir þriggja daga æfingar á Ruapuna brautinni var hann 1.9 sek frá fremsta bíl í tímatökum og hóf leik í 1. keppninni í 18. sæti, en í því 16. í keppnum 2 og 3. Keppnin var gífurlega hörð og til marks um það voru 13 fremstu bílar á sömu sekúndunni í tímatökum. Kristján Einar varð 15. í keppni 1, 13. í keppni 2 of 14. í keppni 3, sem var rúmlega tvöfalt lengri en hinar og keppt um hinn virta Lady Wigram bikar.

TRS mótaröðin heldur áfram á Manfeild brautinni um næstu helgi og eru æfingar hafnar þar. Tímatökur verða á laugardag sem og keppni 1, en á sunnudag er keppni 2 og keppni 3. Eknir eru 16 hringir í fyrstu tveimur keppnunum, en 35 í þeirri þriðju, sem er ennfremur stærsta keppnin í nýsjálenskum íþróttum, New Zealand Grand Prix. TRS mótinu lýkur svo á Taupo brautinni helgina 19. og 20. janúar.

Heimasíða um þátttöku Kristjáns Einars í TRS er www.kristjaneinar.com





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi