Frétt

05.05.2009

Æfing á neyðarviðbrögðum við stórfelldum olíuleka

Skeljungur setti á svið aðstæður þar sem minnstu mátti muna að „stórslys“ hlytist af.

Í morgun fór fram æfing á neyðarviðbrögðum ef til stórfells olíuleka kæmi á einni af bensínstöðvum Skeljungs. Neyðaræfingin fór fram við bensínstöðina við Skógarhlíð og komu lögregla og slökkvilið að æfingunni ásamt fleirum.

Látið var sem jeppi hefði ekið á olíubíl sem var að fylla á stöðina, og vegna rofinnar slöngu láku þúsundir lítra af „bensíni“ úr bílnum og út á umferðargötu. Þá „slasaðist“ bílstjóri olíubílsins, bílstjóri jeppans og vitni sem reyndi að hjálpa bílstjóranum „missti meðvitund“ vegna bensíngufanna sem mynduðust á svæðinu. Ýmsir leikarar komu að æfingunni sem léku viðskiptavini, vitni, fréttafólk og fleira.

Fjöldi manns kom því að æfingunni. Auk slökkviliðs og lögreglu, sem æfðu viðbrögð sín ef til slíks atburðar kæmi, kom Vinnueftirlitið, Heilbrigðiseftirlitið og Orkuveita Reykjavíkur að æfingunni.

Bensínið, sem var litað vatn (með umhverfisvænum lit) í þessu tilfelli, lak hratt út í Skógarhlíðina og endaði inni á plani hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins sem er með höfuðstöðvar í næsta húsi. Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum var miklu tjaldað til og er það mat Öryggisráðs Skeljungs að mjög vel hafi tekist til.

„Æfingin fór vel fram og starfsfólk stóð sig mjög vel. Það brást við aðstæðum samkvæmt okkar viðbragðsáætlunum," segir Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Skeljungs.

Hér eru nokkrar myndir af vettvangi.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi