Viðskiptavinur hringdi og vildi gefa útistarfsmanni á Shell Vesturlandsvegi "Hrós dagsins". Í gærkvöld (þriðjudag) kom viðskiptavinurinn í hávaðaroki á Vesturlandsveginn. Í ljós kom að sprungið var á bílnum. Útistarfsmaðurinn kom viðskiptavinininum til bjargar hið snarasta og skipti um dekk. Viðskiptavinurinn vildi koma þakklæti sínu fyrir frábæra þjónustu til skila.
Við hjá Skeljungi erum að sjálfsögðu ánægð með okkar mann og finnst gaman að heyra frá ánægðum viðskiptavinum.