Frétt

30.04.2009

Jötunn Vélar selur smurolíur og smurefni frá Skeljungi

Skeljungur og Jötunn Vélar hafa gert með sér samning um að Jötunn Vélar taki að sér sölu á smurolíum og smurefnum Skeljungs um allt land, en fyrirtækið er í samstarfi við 14 þjónustuverktæði víðsvegar um landið.

„Með þessum samningi erum við að stórauka þjónustu og auka hagræði fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Finnbogi Magnússon framkvæmdastjóri Jötunn Véla. 

„Samningur þessi er mikill fengur fyrir okkur og við bindum miklar vonir við að geta veitt enn betri þjónustu inn í landbúnaðar- og verktakastarfsemina“, segir Þröstur Arnarson, sölustjóri fyrirtækjasviðs hjá Skeljungi. „Samningurinn tekur á sölu og dreifingu allra Shell smurefna um allt land. Einnig mun Jötunn Vélar bjóða viðskiptavinum, í samstarfi við Skeljung, að gera smurkort fyrir allar vélar og hin ýmsu tæki.“

Jötunn Vélar er leiðandi fyrirtæki  í sölu á vélum og búnaði tengdum landbúnaði og jarðvinnuverktökum. Meðal helstu vörumerkja sem fyrirtækið býður upp á eru Valtra, Massey Ferguson, Pöttinger og Schaffer. Jötunn Vélar rekur einnig Remfló netverslun. Aðsetur fyrirtækisins er á Selfossi. 

Þá á Jötunn Vélar einnig  stóran hlut í fyrirtækinu Brörup Maskinhandel sem staðsett er á Suður-Jótlandi í Danmörku. Brörup Maskinhandel er eitt af elstu vélasölufyrirtækjum í Danmörku, stofnað árið 1929 og hefur verið rekið með góðum hagnaði í mörg ár.





Leit

Leitarvél

Þú ert hér: Fréttir » Frétt
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi