Frétt

29.04.2009
Afsláttur af bensíni til viðskiptavina Hertz
Hertz á Íslandi og Skeljungur hafa gert með sér samstarfssamning þess efnis að frá og með 1.maí n.k. verður afsláttarlykill frá Skeljungi í öllum bifreiðum Hertz bílaleigu. Samningurinn tryggir viðskiptavinum Hertz afslátt af eldsneyti á öllum stöðvum Shell og Bensínorkunnar um land allt. Um er að ræða samtals 66 stöðvar. Afsláttur reiknast alltaf frá dæluverði þ.e.a.s. enginn munur er gerður á því hvort viðkomandi nýtir sér þjónustu Skeljungs eða dælir sjálfur. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé að slíkur samningur sé gerður þar sem leigutakar bílaleigu geta allir sem einn notið hagstæðari kjara en gengur og gerist á almennum markaði.
Myndin var tekin við undirritun samkomulagsins. Frá vinstri Þröstur Arnarsson frá Skeljungi og Björgvin Njáll Ingólfsson frá Hertz á Íslandi.
Þú ert hér:
Fréttir »
Frétt