Nýsköpun og innblástur í 60 ár
Atriðin sem voru svo eftirminnilega fest á filmu í þessari sígildu og áhrifamiklu sjónvarpsauglýsingu, standa fyrir samstarf sem hefur í 60 ár orðið til nýsköpunar og innblásturs.
Tökurnar, sem eru notaðar án tölvugrafíkur í auglýsingunni, eru eins tærar og ekta og afurðirnar sem Shell leggur til í samstarfi sínu við Ferrari Scuderia og Ferrari GT deildina.
Horfðu á myndbandið í heild sinni til að gera þér grein fyrir þeirri djörfung sem þar er á ferðinni – og þannig kemstu skrefinu nær því að upplifa spennuna og adrenalínið sem fylgir því að vera undir stýri á Formúlu 1 bíl á meðan bensínslangan færist örugglega frá risavaxinni flugvélinni yfir í Ferrari 310B bílinn.