Í DV í dag er Lof og last, en þar fær lofið útistarfsmaður á Select í Hraunbæ. Ungur maður kom á bíl og þurfti aðstoð með loft í dekkjum bílsins. Sú aðstoð var, samkvæmt DV, veitt með bros á vör. Á daginn kom að bremsuvökva vantaði á bílinn en viðskiptavinurinn var auralítill. Starfsmaðurinn setti það ekki fyrir sig, sótti bremsuvökva í eigin bíl og fyllti á hjá manninum unga.
Þessi starfsmaður okkar í Hraunbænum heitir Tómas Kristjánsson og er hann starfsfólki okkar góð fyrirmynd í þjónustu við viðskiptavini.